Hátt í 10 metra langur hnúfubakur 23. apríl 2005 00:01
Hvalur sást svamla um í Reykjavíkurhöfn í morgun. Reyndist þar vera hnúfubakur, átta til tíu metra langur að sögn sjónarvotta. Einar Örn Einarsson, skipstjóri á Hvalaskoðunarbátnum Eldingu, segir að báturinn hafi verið á leið út úr höfninni í morgun þegar einn hafnarvörður hafi kallað í þá og tilkynnt þeim um hnúfubak við Grandabryggjuna. Einar segist fyrst varla hafa trúað þessu en þegar þeir komu á staðinn blasti við þeim nokkuð stálpaður hnúfubakur. Að sögn skipstjórans var hvalurinn greinilega að éta inni í höfninni. Einar segir hvalinn enn hafa verið í höfninni síðast þegar hann frétti af honum en virtist á útleið. Einar segist aldrei hafa séð hval áður í Reykjavíkurhöfn. Dæmi þess að hvalir villist inn í hafnir þekkjast þó á Akranesi og í Keflavík svo dæmi séu tekin, en að sögn Einars eru það miklu einfaldari hafnir að fara inn í fyrir svona dýr. Gísli Víkingsson, líffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, segir hnúfubak af þessari lengd vera kálf, líklega nývaninn undan, en fullvaxnir hnúfubakar verða allt að fimmtán metra langir og vega 40-50 tonn. Hnúfubakur er ein þeirra hvalategunda sem var ofveidd um aldamótin þarsíðustu og gekk afar hægt að endurreisa stofninn. Hnúfubakurinn var sárasjáldgæfur þar til um 1970 þegar stofninn tók skyndilegan kipp og er nú orðinn um 14 þúsund dýr. Hnúfubakar eru farhvalir og fara suður á vetrum en líffræðingar hafa orðið varir við að þeir hafi vetursetu í auknum mæli, aðallega á loðnumiðum. Gísli telur hnúfubakskálfinn bara hafa verið að villast, fyrst honum tókst að komast út úr höfninni af eigin rammleik, en andarnefja varð fræg fyrir nokkrum árum fyrir að renna sér upp í slippinn í höfninni aftur og aftur og þurftu björgunarsveitir að draga hana út í hvert sinn. Myndir af hvalnum verða sýndar í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.
Fréttir Innlent Mest lesið Kourani farinn úr landi Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Innlent Fleiri fréttir Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Sjá meira