Yfirvöld geta illa hamið almenning 16. apríl 2005 00:01
Tugþúsundir Kínverja létu ófriðlega og lögðu japanskar stofnanir í rúst í dag. Kínversk yfirvöld virðast eiga erfitt með að hemja reiði almennings. „Burt með japönsku svínin,“ hrópuðu mótmælendur sem létu ófriðlega víðs vegar í Kína í dag, aðra helgina í röð. Tugir þúsunda voru á götum borga og bæja og réðust á allt sem tengdist Japan með einhverjum hætti. Óeirðalögregla lét þó mótmælendurna ekki alveg óáreitta eins og í síðustu viku þó að aðgerðir hennar nú virtust litlu breyta. Í morgun köstuðu mótmælendur grjóti og flöskum að japönsku ræðismannsskrifstofunni í Shanghai og virtist Japönum mjög brugðið við það. Stjórnvöld í Tókýó mótmæltu harðlega. Nobutaka Machimura, utanríkisráðherra Japans, sagðist ekki hafa fengið nákvæmar upplýsingar um málavexti en hann teldi engu að síður að öryggisgæslan hjá kínverskum stjórnvölvum hefði ekki verið næg því skemmdir hefðu verið unnar á japanska sendiráðinu. Heimsókn japanska utanríkisráðherrans til Kína í næstu viku verður ekki aflýst þrátt fyrir atburðina en Japanar krefjast þess að kínversk stjórnvöld grípi til aðgerða þegar í stað. Ástæða þessara mótmæla er japönsk kennslubók þar sem Kínverjum þykir sem reynt sé að fela grimmdarverk Japana í seinni heimsstyrjöldinni. Stjórnvöld í Peking sjá sér þó einnig leik á borði að koma höggi á Japana og hindra fyrirætlanir þeirra um að fá fast sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Kínverjum myndi líka það afar illa, en Kína keppir við Japan um áhrif í Austur-Asíu.
Erlent Fréttir Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Sjá meira