Fisichella sigraði í Melbourne 6. mars 2005 00:01
Ítalinn Giancarlo Fisichella var maður helgarinnar í Formúlunni, en hann sigraði nokkuð örugglega í fyrstu keppni ársins í Melbourne í Ástralíu. Rubens Barrichello hjá Ferrari hafnaði í öðru sæti í keppninni, en félagi Fisichella hjá Renault, Fernando Alonso varð í þriðja sæti og því má segja að lið Renault hafi verið sigurvegarar helgarinnar. Liðið hafði verið að aka frábærlega á undirbúningstímabilinu og þeir sem spáðu því að Renault næði ekki að fylgja því eftir inn í tímabilið þurftu svo sannarlega að éta það ofan í sig eftir helgina. Nokkuð var um óhöpp í keppni helgarinnar og til að mynda þurfti heimsmeistarinn Michael Schumacher að sætta sig við að falla úr keppni eftir að hann lenti í árekstri við Nick Heidfeld hjá Williams. Athygli vakti að nýliðar Red Bull, með skotann David Coulthard fremstan í flokki, náðu frábærum árangri og höfnuðu í fjórða og sjöunda sæti. Giancarlo Fisichella var mjög ánægður með byrjun sína á mótinu; "Þetta var nokkuð auðvelt allan tímann og það er frábært að byrja nýtt keppnistímabil svona vel. Ég reyndi að spara bílinn og aka varlega og það heppnaðist ágætlega, þó ég þyrfti að gá að mér þegar Rubens Barrichello sótti aðeins að mér í lokin", sagði Fisichella, sem var á ráspól í keppninni eftir að hafa náð bestum tíma í tímatökum daginn áður. Pat Symonds, yfirmaður tæknimála hjá Renault var ánægður með sína menn eftir keppnina og sagði lið sitt verða ofarlega í baráttunni um meistaratitilinn í ár. "Þið eigið eftir að sjá meira af Fisichella - þetta verður ekki síðasti sigur hans í ár", sagði Symonds. Rubens Barrichello varaði menn við því að afskrifa Ferrari. "Við verðum í slagnum í ár og þegar nýji bíllinn kemur verðum við enn sterkari", sagði Brasilíumaðurinn, sem ók jafnt og yfirvegað í keppninni og hafnaði eins og áður sagði í öðru sæti.
Íþróttir Mest lesið Leik frestað á U.S. Open Golf Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Golf Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós Fótbolti Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Fótbolti Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Sport Völlurinn of erfiður á síðustu tveim risamótum Golf Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Golf Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Fleiri fréttir Spila æfingarleik á meðan HM stendur Erfiðar aðstæður gætu hjálpað Gunnlaugi Gleði og gott veður á TM mótinu í Eyjum Leik frestað á U.S. Open Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós „Að ganga í gegnum þetta gerði hann miklu sterkari“ Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Maður dagsins á HM: Borinn saman við Essien Völlurinn of erfiður á síðustu tveim risamótum Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Stuðningsmenn baula á vatnspásurnar Liverpool sækir spænskan landsliðsmann Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Dagskráin í dag: Gunnlaugur Árni hefur leik á Opna bandaríska Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Alsíringum tekið opnum örmum í Kansas Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Þjálfaraskipti hjá Sveindísi Frábær byrjun Englendinga Komust í undanúrslit eftir framlengdan leik Sýndi miklar tilfinningar eftir fyrsta markið Þjóðhátíðarsigur á Ísafirði Portúgal - Austur-Kongó | Ronaldo byrjar og slær met ÍR stöðvaði Gróttu og Kári kom Fylki í annað sæti Íslendingarnir fengu mjög góð ráð frá Patrick Reed Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Bjó til sex mörk Fram á gamla heimavellinum Kristófer og Guðrún eignuðust son Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Sjá meira