Sport

Málinu lokið af hálfu Chelsea

Hagir Eiðs Smára Guðjohnsen hjá Celsea standa óhaggaðir þrátt fyrir að hann hafi verið staðinn að verki við meintan ölvunarakstur aðfaranótt sunnudags. Eiður og Jose Mourinho, hinn afar strangi knattspyrnustjóri liðsins, ræddu saman á mánudag og ákváðu í sameiningu að málið heyrði sögunni til og að öll orka þeirra sem koma að félaginu á einn eða annan hátt ætti að fara í að tryggja liðinu enska meistaratitilinn - ekki í óþarfa eftirmála á meintu agabroti Eiðs. Mourinho mun hafa aðvarað Eið á fundi þeirra á mánudag en síðan hafi þeir skilið sáttir. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Fréttablaðsins mun Eiður Smári ekki verða sektaður um 50 þúsund pund, eins og breska pressan hélt fram í gær, einfaldlega vegna þess að Eiður braut ekki agareglur. Eiður kveðst saklaus af öllum ásökunum um ölvunarakstur en viðurkennir að hafa fengið sér tvö vínglös fyrr um kvöldið. Blástursmæling sem gerð var á staðnum sýndi Eið alveg á mörkum leyfilegs áfengismagns og kveðst hann sannfærður um að blóðprufa sem tekin var skömmu síðar sanni sakleysi hans. Niðurstöðu þeirrar prufu er hins vegar ekki að vænta fyrr en í næsta mánuði þannig að þangað til er málið í biðstöðu. Athygli vekur að Eiður Smári hefur hvergi komið fram og sagt sína hlið málsins og sökum þess hafa fjölmiðlar í Englandi gefið sér skotleyfi við að fylla upp í eyðurnar. Ljóst þykir að Eiður hafi brotið agareglur félagsins en hann var stöðvaður á bifreið sinni vegna þess sem lögreglan tilgreindi í skýrslu sinni sem "skringilegt ökulag" klukkan 5:20 aðfaranótt sunnudags. Í þykkum lagabálki sem Mourinho færði leikmönnum fyrir tímabilið segir skilmerkilega að leikmenn eigi að vera komnir heim til sín fyrir miðnætti á hefðbundnum degi en kvöldið fyrir frídag sé leikmönnum leyfilegt að vera úti til klukkan tvö. Mourinho gaf leikmönnum sínum tveggja daga frí eftir sigurleikinn gegn Everton og hefði Eiður því með réttu átt að vera kominn heim til sín rúmum þremur klukkustundum áður en hann var stöðvaður. Enn fremur segir að séu þessar reglur brotnar muni leikmaður verða sektaður um einnar viku laun. Með hliðsjón af þessari reglu og þeirri staðreynd að Eiður mun ekki fá sekt verður ekki annað ályktað en að Mourinho hafi gefið sínum mönnum leyfi til að sletta eilítið úr klaufunum eftir gott gengi að undanförnu og ákveðið að horfa framhjá agareglunum í þetta skipti. Einnig er rætt um að það hafi komið Eiði til góða að vera í miklu uppáhaldi hjá stjóranum sínum. Hann var fyrsti leikmaðurinn sem boðinn var nýr og endurbættur samningur í stjóratíð Mourinho, auk þess sem hann situr í leikmannaráði Chelsea með Claude Makelele og Carlo Cudicini. Allt er þetta sagt hafa hjálpað Eiði til að ná fram þeirri lausn sem úr hefur orðið, í stað þess að hann fái sömu meðferð og Rúmeninn Adrian Mutu, sem rekinn var frá félaginu í haust fyrir brot sem reyndar er ekki samanburðarhæft við það sem Eiður er sakaður um að hafa framið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×