Vill útrýma harðstjórn í heiminum 21. janúar 2005 00:01
George Bush Bandaríkjaforseti hét því að brúa gjána á milli andstæðra hreyfinga í Bandaríkjunum og að útrýma harðstjórn um allan heim í setningarræðu sinni í gær. Ríflega helmingur Bandaríkjamanna efast um fyrirætlanir forsetans. Enginn forseti frá því að Richard Nixon var svarinn í embætti í annað sinn hefur notið jafn lítils trausts og George Bush. Hann fær 52 prósent úr út könnunum um ánægju með störf hans. Hann virtist þó ekki láta þetta á sig fá og hélt setningarræðu sína fyrir aftan þykka, skothelda glerplötu, en segja má að gríðarleg öryggisgæsla hafi nánast skyggt á hátíðarhöldin í Washington í gær. Skilja mátti orð Bush á köflum sem nokkuð eindregna viðvörun til harðstjórna um allan heim. „Við stöndum með þeim sem standa fyrir lýðræði og umbótasinnar, hvar sem þeir eru, í fangelsum eða útlegð, hafi þetta hugfast: Bandaríkin vita hverjir þið eruð og líta svo á að þið séuð framtíðarleiðtogar þjóða ykkar,“ sagði Bush. Hann sagði jafnframt að það væri hagur Bandaríkjanna og mikilvægt fyrir öryggishagsmuni landsins að vinna að framgangi lýðræðis um víða veröld. Þrír fjórðu hlutar aðspurðra í könnun Gallups fyrir CNN sögðust hafa fylgst með vígslunni í gær og almennt ríkti ánægja með frammistöðu forsetans. Sextíu prósent aðspurðra töldu fyrirætlanir hans um að binda enda á harðstjórn óraunhæfar þó að meirihluti væri sammála markmiðinu. Bush stansaði stutt á setningardansleikjum sem haldnir voru honum til heiðurs í Washington í gær. Hann snaraði sér í gegnum heila níu dansleiki og var samt kominn heim rétt um klukkan tíu þar sem hann fór í bólið á sínum venjulega háttatíma.
Erlent Fréttir Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Fleiri fréttir Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Sjá meira