Spilavíti og líkamsrækt í Airbus? 18. janúar 2005 00:01
Hún er bæði of þung og of dýr en hún á samt að komast í loftið, risaþotan A380 sem var frumsýnd í dag. Um borð í henni verða í boði lystisemdir og líkamsrækt, að minnsta kosti svo lengi sem flugfélögin kjósa ekki að nota allt rýmið undir farþega og troða átta hundruð manns um borð. Það var mikið um dýrðir þegar hulunni var svipt af stærstu farþegaþotu heims, Airbus A380, í Toulouse í Frakklandi í morgun. Vélin er enda engin smásmíð. Á vængjunum er nógu mikið pláss til að leggja sjötíu bifreiðum en alls eru tæpir áttatíu metrar á milli vængendanna sem þýðir að ráðast þarf í töluverðar framkvæmdir á helstu flugvöllum heims til að koma vélinni fyrir. A380 er um 118 tonnum þyngri en Boeign 747 júmbóþotan og er þess vegna kölluð hinum rembingslega nafni súperjúmbó. Það var ekki laust við að rembingur fælist einnig í orðum þeirra þjóðarleiðtoga sem mættir voru til að hampa evrópskri smíð. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði að flugvélin væri sú mest spennandi um þessar mundir. Hún væri tákn efnahagslegs styrks, nýsköpunar á tæknisviðinu og færni og trúmennsku þeirra sem sköpuðu hana og umfram allt sannfæringarinnar um að Evrópa gæti keppt til sigurs á alþjóðamarkaði. Hann sagði enn fremur að vélin bæri vott um gæði bresks iðnaðar og evrópskrar samvinnu. Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, sagðist stoltur af því að Airbus hefði náð forystu á sviði flugvélasmíði í heiminum. Þeir sem spyrðu hvernig slíkt skyldi hafa gerst skyldu minntir á að góðar og gildar evrópskar hefðir hefðu gert smíði vélarinnar mögulega. Barir, biljarðstofur, sturtur, bókasöfn, svefnaðstaða, spilavíti og líkamsrækt eru meðal þess sem fræðilega er hægt að koma fyrir um borð í þessari tveggja hæða risavél, sem rúmar 555 farþega sé henni skipt upp í þrjú farrými. Þau flugfélög sem vilja flytja fleiri geta það líka léttilega. Með því að bjóða bara upp á ódýrustu sæti og troða inn í vélina er pláss fyrir átta hundruð farþega. Sextán farþegadyr þarf til að koma fólki inn og út með hraði. Þó að vélin hafi verið frumsýnd í dag er þó enn eftir stórt skref áður en farþegaflug hefst. Það þarf að koma henni í loftið og að því er stefnt í apríl á þessu ári. Eitt flugfélaganna sem keypt hefur þessa risavél er Virgin Atlantic. Eigandi þess, Richard Branson, segist meðal annars ætla að bjóða farþegum að freista gæfunnar í spilavíti um borð og fá sér blund í tvíbreiðum rúmum. Þannig verði nóg að gera í háloftunum lóðrétt og lárétt.
Erlent Fréttir Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Erlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Fleiri fréttir Áhrifavaldur drepin eftir hún minnst á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Sjá meira