Erlent

Lenti á stærsta tungli Satúrnusar

Evrópskum geimvísindamönnum tókst í gær að lenda geimfari á yfirborði Títans, stærsta tunglsins sem gengur á sporbraut um Satúrnus og þykir það mikið verkfræðilegt afrek. Vonir eru bundnar við að geimfarið sendi frá sér upplýsingar um efni og andrúmsloft tunglsins sem geti varpað ljósi á uppruna lífs á jörðu. "Við vitum á grundvelli lögmála þyngdaraflsins að það er lent," sagði David Southwood, vísindastjóri Evrópsku geimvísindastofnunarinnar, um för geimfarsins Huygens fimm tímum eftir að það hóf för sína niður á yfirborð tunglsins. Upphaflega var ekki gert ráð fyrir að Huygens sendi frá sér merki í nema þrjá klukkutíma. Mikilvægasti þátturinn í ferð Huygens var tveggja og hálfs klukkustunda flug farsins niður að tunglinu. Meðan á því stóð átti Huygens að safna upplýsingum um andrúmsloftið og taka myndir af yfirborði tunglsins. Talsverð líkindi eru talin með Títan og jörðinni þegar hún var ung og því telja menn að finna megi vísbendingar um hvernig líf þróaðist á jörðu. Geimfarið sendi upplýsingar frá sér til móðurskipsins Cassini sem sendi þær áfram til stjórnstöðvar í Þýskalandi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×