Sport

Rooney gegn Everton á laugardaginn

Wayne Rooney mun leggja leið sína á heimavöll síns gamla liðs, Everton, á laugardaginn. Það verður í fyrsta sinn sem það gerist eftir að Rooney sagði skilið við liðið og gerði samning við Manchester United á síðasta ári. Alan Irvine, aðstoðarframkvæmdastjóri Everton, sagði að vel yrði tekið á móti Rooney. "Við verðum fagmennskan uppmáluð gagnvart honum eins og öðrum góðum leikmönnum," sagði Irvine. Alex Ferguson, knattspyrnustjóri United, hefur ekki tilkynnt hvort Rooney leiki með en sögusagnir eru á lofti um að hann verði hvíldur fyrir átökin gegn AC Milan í Meistaradeild Evrópu í næstu viku.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×