Viðbúnaður vegna prófaloka 18. maí 2005 00:01
Mikill viðbúnaður er í dag, lokadag samræmdra prófa, og hafa lögregla og ýmis samtök tekið saman höndum. Tíundu bekkingum verður m.a. boðið í ferðir og upp á ýmsa aðra afþreyingu til að fagna próflokunum. Börn í tíunda bekk eru nú um það bil að fara að ljúka náttúrufræðiprófi en það er síðasta samræmda prófið. Eins og flestum er kunnugt fara fagnaðarlætin stundum úr böndunum þegar tíundu bekkingar ljúka prófalotunni með miður skemmtilegum afleiðingum oft á tíðum. Félagsþjónustan í Reykjavík, Íþrótta- og tómstundaráð, SAMFOK og Lögreglan í Reykjavík hafa tekið höndum saman til að draga úr óæskilegri hópamyndun og drykkju meðal barna. Meðal þess sem gert er er að bjóða krökkunum upp á aðra valkosti en að safnast saman og drekka. Stefanía Sörheller hjá Félagsþjónustunni í Reykjavík segir krakkana hafa tekist á við erfiða hluti að undanförnu og í langflestum skólum fari langflestir krakkar í ferðir eða fagni á annan hátt vegna próflokanna. Stefanía segir enn fremur að tíundu bekkingar hafi undanfarin ár sýnt áhuga á öðrum valkostum við að fagna prófalokum. Margir nýti sér þá og ástandið hafi batnað undanfarin ár. Nú njóti mun fleiri krakkar tímamótanna með þessum hætti en áður var. Árangur hafi náðst með samstilltu átaki. Langflestir krakkarnir séu í góðum málum en ekki þurfi mikið út af að bregða til að skyggja á það. Augljóslega kemur þessi dagur árlega og því spurning hvort að hann valdi þeim sem að þessum málum vinna kvíða? Stefanía segir engan kvíða fyrir deginum. Unglingunum og þeim sem standa að baki þeim sé treyst til þess að hjálpast að við að gera tímamótin ánægjuleg og yfirvöld trúi því og treysti að þannig verði það.
Fréttir Innlent Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Sjá meira