Hættu lífi sínu í rútuferð 7. apríl 2005 00:01
Söguleg rútuferð var farin í morgun á milli indverska og pakistanska hluta Kasmírhéraðs. Fimmtíu farþegar hættu lífi sínu með því að taka þátt í þessari friðarför sem vonir standa til að marki upphafið að friðsamlegri samskiptum Indlands og Pakistans. Þetta er í fyrsta sinn í tæp sextíu ár sem boðið er upp á áætlunarferðir á milli indverska og pakistanska hluta Kasmírs. Vegurinn hefur verið lokaður enda hefur stríðsástand ríkt á þessu svæði í áratugi. Indland og Pakistan hafa barist um yfirráð í Kasmírhéraði en að undanförnu hafa yfirvöld í þessum löndum sýnt áhuga á því að slíðra sverðin. Áætlunarferðirnar eru hluti af þessu friðarferli. Tvær rútur lögðu upp í morgun, önnur með 31 farþega frá Muzaffarabad í Pakistan og hin með 19 farþega frá Srinagar á Indlandi. Þessir farþegar hættu beinlínis lífi sínu með því að fara í þessa fyrstu ferð því uppreisnarmenn á báða bóga hafa heitið því að berjast áfram. Í gær réðust tveir menn á umferðarmiðstöðina í Srinagar, skutu í allar áttir og kveiktu í byggingunni með sjálfssmorðssprengjum. Farþegar áttu fótum sínum fjör að launa en engan þeirra sakaði. Skotið var á rútuna Pakistanmegin í morgun en þar sakaði heldur engan. Farþegarnir sögðust tilbúnir að hætta lífi sínu til að stuðla að friði.
Erlent Fréttir Mest lesið Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Erlent Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Innlent Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Erlent 27 daga frostlausum kafla lokið Veður Heimila sölu gervigreindar örflaga til Kína gegn hluta af ágóðanum Erlent Sæti Artúrs logar Erlent Dásamar ÁTVR og skýtur á lögreglustjóra Innlent Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent Nýtt skilti komið upp og rauða ljósið mun loga oftar Innlent „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Innlent Fleiri fréttir Fordæma „markviss“ dráp Ísraela á blaðamönnum á Gasa Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Heimila sölu gervigreindar örflaga til Kína gegn hluta af ágóðanum Eyðilegging eftir skjálfta í Tyrklandi Ástralir hyggjast viðurkenna sjálfstæða Palestínu Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Sæti Artúrs logar Fundur Selenskí, Pútíns og Trump á næsta leiti Stór skjálfti reið yfir í Tyrklandi Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Sjá meira