Erlent

Íran sagt næsta skotmark

Næsta skotmark Bandaríkjastjórnar er Íran. Þessu heldur bandarískur rannsóknarblaðamaður fram og segir Bush forseta haka við löndin sem hann sagði hluta öxulveldis hins illa. Íranar segjast búnir undir árás. Öxull hins illa er nafnið sem Bush Bandaríkjaforseti gaf Írak, Norður-Kóreu og Íran í janúar árið 2002. Ári síðar hófst innrásin í Írak og nú heldur hinn þekkti rannsóknarblaðamaður Seymour Hersh því fram að nágrannaríkið Íran sé næst á dagskrá. Hersh segist hafa komist að því að Bandaríkjamenn hafi stundað miklar njósnir frá því í sumar til þess að safna upplýsingum um það sem Bush-stjórnin telji víðtæka, óupplýsta og leynilega kjarnorkuvopnaáætlun. Í augum ríkisstjórnar Bandaríkjanna ráði Íranar ekki aðeins yfir kjarnavopnum heldur hvetji þeir einnig til hryðjuverkastarfsemi og styðji í ríkari mæli uppreisnina í Írak. Þess vegna sé Íran skotmark nú. Aðspurður um hvort þetta komi í framhaldi af yfirlýsingu Bush um öxulveldi hins illa segist Hersh telja að svo sé. Hann telji að forsetinn hafi búið til lista yfir slík ríki. Hersh segir Bush og ráðgjafa hans hafa náð meira valdi yfir her og leyniþjónustum Bandaríkjanna en fordæmi séu um síðan spennan var sem mest á tímum Kalda stríðsins. Þessi verkfæri séu notuð til að réttlæta hverjar þær aðgerðir sem gripið hafi verið og verði til. Bush forseti neitar þessu. Hann segist ekki hafa lesið grein Hersh en varnarmálaráðuneytið hafi hafnað því sem fram hafi komið í henni og sagt það ósatt. Stefnan í málefnum Írans sé að eiga diplómatísk samskipti við ríkið og vinna með þjóðum heims að því að sannfæra Írana um að þróa ekki kjarnavopn. Það verði ávallt að tala skýrt um þessi mál og minna íranskan almenning á að í huga Bandaríkjamanna sé lýðræðið affarasælasti lífsmáti allra og að þeir standi með umbótasinnum í Íran. Sjálfir virðast Íranar ekki vissir um fyrirætlanir Bandaríkjamanna og varnarmálaráðherra landsins sagði í morgun að her Írans væri nógu öflugur til að takast á við innrásarlið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×