Kosningar gætu valdið klofningi 18. janúar 2005 00:01
Vonir standa til þess að kosningarnar í Írak verði skref í átt að tilurð frjáls lýðræðisríkis á svæðinu en svo virðist sem þær gætu valdið klofningi frekar en öðru. Árásir á stjórnmálaflokka valda ótta og ringulreið. Sjítar og súnnítar virðast með öllu klofnir í afstöðu sinni. Sjítar, sem eru um sextíu prósent þjóðarinnar, fagna kosningunum, en súnnítar vilja að þeim verði frestað. Stjórnmálaleiðtogar úr röðum þeirra hyggjast margir sniðganga kosningarnar og á svæðum súnníta, þar sem árásir og hryðjuverk eru tíð, þora margir ekki á kjörstað. Landamærum Íraks verður lokað fyrir þingkosningarnar og að auki verður umferð við kosningamiðstöðvar bönnuð til að draga úr líkum á árásum. Í morgun var gerð sjálfsmorðssprengjuárás á kosningamiðstöð stjórnmálaflokks sjíta. Þar fórst einn og sjö særðust. Einn af þeim sem bjóða sig fram til forsætisráðherra í kosningunum var í morgun ráðinn af dögum skammt frá borginni Basra. Nafn mannsins hefur ekki verið gefið upp. Uppreisnarmenn í Írak rændu í gærkvöldi erkibiskupi sýrlenska hluta kaþólsku kirkjunnar þar sem hann var á gangi utan við kirkju sína í borginni Mósúl. Honum var sleppt á ný í morgun og fullyrða talsmenn kirkjunnar að ekki hafi verið greitt lausnargjald. Ekki er ljóst hvers vegna biskupnum var rænt en kristnir menn hafa áður orðið fyrir barðinu á uppreisnarmönnum. Í ágúst síðastliðnum voru gerðar sprengjuárásir á fjórar kirkjur í borginni Mósúl. Fimmtíu og tvö prósent Bandaríkjamanna telja innrásina í Írak mistök samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallups, sjónvarpsstöðvarinnar CNN og dagblaðsins USA Today. Fjöldi þeirra sem andsnúnir eru innrásinni eykst, því að sambærileg könnun í nóvember leiddi í ljós að fjörutíu og sjö prósent Bandaríkjamanna töldu innrásina mistök, eða fimm prósentum færri en nú. Í lok marsmánaðar árið 2003, fáeinum dögum eftir að ráðist var inn í Írak, sögðust þrír af hverjum fjórum Bandaríkjamönnum styðja hernaðaraðgerðirnar.
Erlent Fréttir Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fleiri fréttir Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Sjá meira