Spenna fyrir kosningarnar í Noregi 10. september 2005 00:01
Mikil spenna ríkir fyrir þingkosningar í Noregi sem fara fram á mánudaginn. Nýjar skoðanakannanir benda til þess að ríkisstjórn Kjells Magne Bondeviks bæti við sig fylgi og nú virðist fylgi hennar og bandalags stjórnaranstöðuflokkanna nærri hnífjafnt. Leiðtogar bæði stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnarinnar eyða öllu púðri sínu í að vinna óákveðna kjósendur á sitt band á síðustu metrunum fyrir kosningarnar. Könnun dagblaðsins Vart Land í dag bendir til þess að stjórnarandstaðan hafi örlítið meira fylgi en samkvæmt könnun TV2 virðist ríkisstjórnin ætla að halda velli. Vart má á milli sjá og flestar kannanir undanfarið benda til þess að ríkisstjórnin fái á bilinu áttatíu og tvo til áttatíu og átta þingmenn en hún þarf áttatíu og fimm til að halda velli. Fyrir aðeins örfáum vikum var allt útlit fyrir að ríkisstjórnin myndi falla en nú virðist hún aftur vera farin að sækja á eftir að ný lífskjaraskýrsla Sameinuðu þjóðanna kom út þar sem Noregur var í fyrsta sæti. En þó svo að ríkisstjórnin haldi velli er ekki öruggt að samstarfið haldi því Carl Hagen, formaður Framfaraflokksins, segir að það komi ekki til greina að Bondevik verði forsætisráðherra næstu fjögur árin. Bondevik er ekki sáttur við þessi ummæli Hagens og segir ástæðulaust að búa til ágreining áður en úrslit kosninganna liggja fyrir. Allt gæti þetta á endanum orðið vatn á myllu Jens Stoltenbergs, helsta leiðtoga stjórnarandstöðuflokkanna, sem margir spá að verði næsti forsætisráðherra Noregs.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Sjá meira