Blair fer til fundar við Bush 7. júní 2005 00:01
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, flaug til fundar við George W. Bush Bandaríkjaforseta í gær. Meðal þess sem efst verður á dagskrá viðræðna þeirra eru útgjöld til þróunarmála í Austur-Afríku, en Blair er í mikið í mun að eyða ágreiningi um það mál áður en leiðtogafundur G8-hópsins hefst í Skotlandi síðar í þessum mánuði. Bandaríkjastjórn hét í gær að veita 674 milljónum Bandaríkjadala, andvirði um 43 milljarða króna, til matvælahjálpar í Erítreu og Eþíópíu, en það breytir ekki þeirri andstöðu sem Bush forseti hefur sýnt viðleitni Blairs til stóraukinna útgjalda til þróunaraðstoðar í Afríku. Blair lét hafa eftir sér í gær að matvælaaðstoðarátak sem þetta væri velkomið sem slíkt, en það væri aðeins brot af því sem ráðast yrði í. Sem forysturíki G8-hóps helstu iðnríkja heims næsta árið hafa Blair og nýendurkjörin ríkisstjórn hans sett á oddinn stefnu sem miðar að stórefldri aðstoð við Afríku og átaki í baráttunni gegn loftslagsbreytingum af mannavöldum. Enn frekar en Afríkuaðstoðin er loftmengunarátakið til þess fallið að skapa núning við ráðamenn í Washington. Ef Blair skyldi takast að telja Bush á að leggja þessum oddamálum lið yrði það til þess fallið að varpa jákvæðara ljósi á pólitískan orðstír Blairs eftir þann skell sem hann mátti þola vegna þess hve sú ákvörðun hans að gera innrás í Írak við hlið Bandaríkjamanna hefur reynst óvinsæl meðal breskra kjósenda. Að mati stjórnmálaskýrenda fer Blair nú til fundar við Bush í vissu um að eiga hönk upp í bakið á honum, en þetta er í fyrsta sinn sem leiðtogarnir tveir hittast eftir naumt endurkjör Blairs fyrir mánuði.
Erlent Fréttir Mest lesið Grunaður hraðbankaþjófur nennti ekki með austur nóttina örlagaríku Innlent Mannskæð skotárás í skóla í Bandaríkjunum Erlent Ekki séð neitt þessu líkt á sínum fjörutíu ára ferli Innlent Glímdi við veikindi fyrir andlátið sem breyttu persónuleika hans Innlent Til skoðunar að flytja Sjálfstæðisflokkinn úr Valhöll Innlent Stefna Open AI vegna sjálfsvígs sonarins Erlent Supu hveljur á fundi með ráðherra á Egilsstöðum Innlent Er við góða líkamlega heilsu en heilinn að „bregðast honum“ Erlent Raðsundlaugarkúkari gengur laus í Oulu Erlent Kynna drög að nýrri stefnu í heilbrigðismálum Innlent Fleiri fréttir Mannskæð skotárás í skóla í Bandaríkjunum Með rétt til að „gera hvað sem ég vil“ „Þetta í raun staðfestir það sem að flestir bjuggust við“ Tilraunaskotið heppnaðist loksins Biður grænlenskar konur afsökunar vegna „lykkjumálsins“ Raðsundlaugarkúkari gengur laus í Oulu Stefna Open AI vegna sjálfsvígs sonarins Frakkar skila höfuðkúpu konungsins Toera Fundu steinaldarbyggð í Árósaflóa sem fór undir sjó eftir ísöld Lögfesta bann gegn símanotkun í skólum Kallar bandarískan erindreka á teppið vegna Grænlandsmála Er við góða líkamlega heilsu en heilinn að „bregðast honum“ 50 prósenta tollar á indverskar vörur taka gildi í Bandaríkjunum Málverk stolið af nasistum fannst í argentínskri fasteignaauglýsingu Gríðarstór sandstormur olli usla í Arizona Ungstirni ryður sér til rúms Árásir á olíuvinnslu í Rússlandi bíta Flúði þungvopnaður eftir að hafa myrt tvo lögregluþjóna Stefna búi Epsteins og vilja afmælisbókina Ástralir vísa sendiherra Íran úr landi og loka sendiráðinu í Tehran Trump gerir aðför að stjórn Seðlabankans Örlög Bayrou ráðast 8. september Vörpuðu sprengjum á sjúkrahús með 15 mínútna millibili Vilja nú senda El Salvador fangann til Úganda Habeck hættir á þingi Hótar að senda herinn til Baltimore El Mayo sagður ætla að játa sekt Tíunda skotið klikkaði Yfirmaður heraflans er á móti hernámi og vill semja Persónulegar og átakanlegar lýsingar í ævisögu Giuffre Sjá meira