Ys og þys vegna breytinga 25. júlí 2005 00:01 "
Ég var nýbúin að læra á það hvaða vagna ég ætti að taka og svo fór ég í vikufrí og þá er allt breytt og ég þarf að læra allt upp á nýtt," sagði Inga Berghäuser sem vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar hún beið eftir sínum vagni á Hlemmi í gær. Hún var þó ekki ein um það því farþegar sem og bílstjórar Strætó þurftu að gíma við nýjar aðstæður í gær. "Við erum að bíða eftir vagni sem átti að vera kominn fyrir korteri en það er svo gott veður að það skiptir ekki máli," sagði Auður Ólafsdóttir sem þreytti biðlund sína á Hlemmi. Daniel Einarsson sem ók tvistinn hafði verið kallaður úr sumarfríi og fékk einn kynningarrúnt áður en hann fór að keyra áður óþekkta leið. "Við gömlu refirirnir í bransanum látum ekkert okkur fyrir brjósti brenna, það getur verið að hinir yngri séu eitthvað að kvarta," sagði Daniel sposkur. Þorbjörg Kristjánsdóttir sem sér um upplýsingar Strætó á Helmmi hafði í nógu að snúast og sagði að fjölmargir hefðu farið á mis við upplýsingabæklinga sem þó átti að dreyfa í hvert hús. Hún var ekki ein um að veita upplýsingar því fjölmargir farþegar spurðu bílstjóra spörunum úr en þeir voru fjölmargir við Hlemm þegar blaðamann bar að. Nokkrir bílstjórar sem blaðamaður talaði við sagði að ekki væri von á öðru en eitt og annað færi úrskeiðis á fyrsta degi þar sem breytingarnar væru róttækar. Nokkrir vegfærendur kvörtuðu yfir því að hafa ekki fengið upplýsingabæklinga og aðrir sögðu upplýsingar ekki vera til staðar í biðskylum í sínu hverfi. Ásgeir Eiríksson framkvæmdastjóri Strætó segir að upplýsingabæklingar hafi átt að berast í hvert hús með Fréttablaðinu í síðustu viku og að fyrirtækið hafi sent menn til að bera út bælinga í þeim hverfum þar sem ekki voru blaðberar til taks. Hann segir það rétt að ekki hafi náðst að setja tímatöflur í öll biðskýli en segir að þær verði kominar á alla staði í dag. Hann segir að vel hafi tekist til á þessum fyrsta virka vinnudegi þó nokkrar tafir hafi orðið en við slíku má búast, segir hann, þegar svo viðamiklar breytingar eru að ganga í garð.
Fréttir Innlent Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira