Lax úr Breiðdalsá talinn eldislax 25. júlí 2005 00:01
Flest bendir til þess að eldislax hafi veiðst á stöng í Breiðdalsá síðastliðinn miðvikudag. Um er að ræða nærri 14 punda hrygnu sem veiddist í svonefndum Mið Eyjakrók og hafa hreistursýni úr laxinum verið send Veiðimálastofnun. Sigurður Guðjónsson forstöðumaður Veiðimálastofnunar hefur skoðað mynd af laxinum og telur afar líklegt að um sé að ræða eldislax. "Uggar eru ansi nagaðir og einnig sporðurinn og það bendir til þess að laxinn hafi verið alinn í kví." Sigurður bendir jafnframt á slit á kjafti og tálknbörðum sem vísi einnig til þess að laxinn hafi verið alinn í kví. Segja megi með meiri vissu um upprunann þegar búið verði að rannsaka hreistrið af honum. Þrátt fyrir nálægð kvíaeldisins í Mjóafirði er ekki vitað til þess að eldislax hafi veiðst í austfirsku ánum í fyrra. Árið 2003 sluppu um þrjú þúsund laxar af norskum uppruna úr eldiskví Mjóafjarðarstöðvarinnar í Norðfjarðarhöfn. Nokkrir þeirra veiddust í Breiðdalsá og Selá og Hofsá í Vopnafirði sem og í öðrum ám á Austurlandi. Ekki er talið líklegt að laxinn úr Breiðdalsá sé úr hópi þeirra. "Okkur vitanlega hefur ekkert sloppið úr kvíunum nýlega," segir Sigurður Jónsson starfsmaður Sæsilfurs í Mjóafirði, en þar eru nú hátt í fimm þúsund tonn af laxi í kvíum. Sigurður getur þess að lítilræði af laxi hafi þó sloppið úr kví í firðinum í fyrra. Stangveiðimenn og umhverfissinnar hafa alla tíð bent á hættuna á því að norskur eldislax kynni að sleppa úr eldiskvíum í fjörðum austanlands og blandast villta íslenska laxinum. Órækar sannanir fyrir kynblöndun eru þó ekki enn fyrir hendi. Að sögn Sigurðar Guðjónssonar forstöðumanns Veiðimálastofnunar skortir enn þekkingu á afkomu og afdrifum slíkra seiða í hafinu og hvort þau megni yfirleitt að ganga aftur í árnar og tímgast.
Fréttir Innlent Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Fleiri fréttir „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Sjá meira