Flóðið hefur náð hámarki sínu 25. júlí 2005 00:01
Flóðið í Jöklu við Kárahnjúka hefur náð hámarki sínu og er rennsli í ánni farið að minnka. Mest náði það um það bil hundrað og áttatíuföldu meðalrennsli Elliðaánna en eftir flóðið í fyrra var ekki búist við öðru flóði í Jöklu fyrr en eftir tíu til tuttugu ár. Í fyrra flæddi Jökla yfir brúna við Kárahnjúka og var brúin á tveggja metra dýpi þegar rennslið varð mest. Þá sögðu Landsvirkjunarmenn að miðað við tölfræðina mætti búast við næsta svona flóði eftir einn til tvo áratugi. Í gær kaffærði áin hins vegar brúna annað árið í röð. Sigurður Arnalds, kynningarstjóri virkjunarinnar, segir þetta stafa af samfelldum hlýindum ár eftir ár sem komi víða fram, t.a.m. í minnkun jökla. „Þetta er viðburður sem að öðru jöfnu ætti að gerast á 10-20 ára fresti en það er hlýindaskeið núna á Íslandi og þess vegna fáum við þetta núna ár eftir ár,“ segir Sigurður. Síðdegis í dag var farið að draga úr rennslinu. Sigurður segir flóðið ekki hafa haft nein áhrif á framkvæmdirnar að Kárahnjúkum. Varnarstíflan fyrir neðan brúna geti tekið við þessu og meira til. Að sögn Sigurðar varð rennslið tæpir 900 rúmmetrar á sekúndu en til samanburðar er meðalrennsli Elliðaánna um fimm rúmmetrar. Sigurður segir alls ekki útilokað að flóð í Jöklu verði árleg. Það fari eftir því hvort þessi miklu hlýindi haldi áfram.
Fréttir Innlent Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Fleiri fréttir Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Sjá meira