Kosið í Írak í skugga ofbeldis 29. janúar 2005 00:01
Flugskeyti var skotið á bandaríska sendiráðið í Bagdad í gær. Tveir Bandaríkjamenn létu lífið og fjórir særðust. Skömmu áður en flugskeytaárásin var gerð létust þrír íraskir lögreglumenn og fimm óbreyttir borgarar í sjálfsmorðsárás annars staðar í borginni. Gríðarleg ólga ríkir í landinu og er búist við því að óöldin haldi áfram í dag þegar þing- og sveitarstjórnarkosningar fara fram. Uppreisnarmenn súnní-múslima hafa hótað hertum árásum og segja að spjótunum verði beint að kjörstöðum. Öryggisgæsla er gríðarlega mikil í landinu vegna þessa. Algjör óvissa ríkir um það hversu margir munu taka þátt í kosningunum en óttast er að stór hópur fólks mæti ekki á kjörstaði af ótta við árásir ofbeldismanna. George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, áréttaði í gær að kosningarnar myndu ekki binda enda á hryðjuverkaárásir öfgamanna. Hann sagði hins vegar að þær mörkuðu upphafið að lýðræði í Írak og að friður væri í augsýn. Bush sagði að hryðjuverkamenn myndu gera allt sem í þeirra valdi stæði til að trufla kosningarnar í dag. Það væri kannski skiljanlegt því hryðjuverkamennirnir hefðu hagnast á þeirri ógnarstjórn sem ríkt hefði í landinu um áratugaskeið en með kosningunum væri breyttir tímar framundan. Alls eru um 5.300 kjörstaðir í landinu og opnuðu þeir klukkan fjögur í nótt. Kjörstaðir loka síðan klukkan tvö í dag. Búist er við því að það taki fjóra til fimm daga að telja atkvæðin. Alls er kosið um 275 þingsæti og verður fyrsta verk þingsins að skrifa nýja stjórnarskrá. Stefnt er því að nýr forsætisráðherra taki við stjórn landsins í byrjun mars og ríkisstjórn mynduð í lok þess mánaðar.
Erlent Fréttir Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Sjá meira