Segjast ekki ráðast á Íran 23. janúar 2005 00:01
Hyggi Bandaríkjamenn á innrás í Íran gætu þeir þurft að ráðast einir inn í landið. Bretar ætla sér ekki að taka þátt í hernaði gegn landinu en vilja semja við Írana um kjarnorkuvopnáætlun landsins. Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, lét taka saman 200 blaðsíðna skýrslu þar sem andstaða Breta við stríð í Íran er útlistuð. Þar eru jafnframt færð rök fyrir því að hverju frekar ætti að fara sáttaleiðina og semja við Írana um kjarnorkuáætlun stjórnvalda þar í landi. Sunday Times greinir frá skýrslunni í dag og segir að þar sé meðal annars fullyrt að sú lausn sem Bretar, Frakkar og Þjóðverjar hafi reynt sé sú vænlegasta, þ.e. samningaleiðin, og að þannig megi taka tillit til réttmætra, friðsamlegra hagsmuna Írana af því að nýta kjarnorku. Skýrslan var kynnt sama dag og Bush Bandaríkjaforseti sór embættiseið í vikunni. Bretar eru sagðir hafa nokkrar áhyggjur af því að í Washington veki skýrslan litla kátínu, og er hermt að nokkur spenna sé á milli Washington og Lundúna vegna málsins. Engu að síður segir Sunday Times að Tony Blair muni ítreka á fundum með bandarískum embættis- og stjórnmálamönnum á næstunni að Bretar hafi ekki áhuga á frekari stríðsrekstri í Miðausturlöndum. Árás á Íran væri mikil mistök, að sögn utanríkisráðherra Írans. Á fréttamannafundi í Teheran kvaðst hann jafnframt telja líkurnar á slíkri árás afar litlar nema að einhverjum væri mikið í mun að gera hernaðarleg mistök. Ráðherrann sagði yfirlýsingar bandarískra ráðamanna undanfarna daga, þess efnis að meint kjarnorkuvopnaáætlun Írans væri áhyggjuefni og að landið væri efst á gátlista stjórnvalda, væru ekkert annað en sálfræðihernaður.
Erlent Fréttir Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Sjá meira