Vopnahléssamkomulag liggur fyrir 23. janúar 2005 00:01
Vopnahléssamkomulag liggur fyrir milli palestínskra yfirvalda og skæruliðasamtaka á sjálfsstjórnarsvæðunum. Allir hlutaðeigandi neita þó fregnunum en talið er að betur horfi fyrir botni Miðjarðarhafs en í langan tíma. Ísraelsk stjórnvöld segja Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, hafa náð vopnahléssamkomulagi við skæruliða- og hryðjuverkahreyfingar Palestínumanna. Varnarmálaráðherra Ísraels segir Abbas hafa samið við íslamska Jihad og Hamas um vopnahlé í mánuð á meðan unnið er að langtímalausn. Talsmenn samtakanna harðneita þessu og segjast ekki útiloka neinar aðgerðir fyrr en Ísraelsmenn hætti sjálfir hernaðaraðgerðum sínum. Hætti Ísraelsmenn aðgerðum verði slíkt hið sama uppi á teningnum meðal Palestínumanna. Formælendur Ísraelsstjórnar vilja ekki gefa út neina slíka yfirlýsingu og segja ljóst að verði friðsamt á sjálfsstjórnarsvæðunum þurfi ekki að grípa til hernaðaraðgerða. Talsmaður Abbas neitaði að tjá sig um málið. Ljóst virðist að einhvers konar samkomulag liggur fyrir en deilt er um eðli þess. Skæruliðasamtökin hafi í raun samþykkt að leggja niður vopn í bili að því tilskildu að Ísraelsmenn geri ekki neitt en vilji ekki gefa út yfirlýsing um formlegt vopnahlé. Einn heimildarmaður dagblaðsins Haaretz meðal harðlínumanna segir Ísraelsmenn verða að gefa út ákveðna yfirlýsingu um breytta framgöngu á Gasaströndinni áður en samkomulag liggur fyrir. Vandinn virðist því snúast um hverjir stígi formlega fyrsta skrefið. Í dag verður haldinn ríkisstjórnarfundur í stjórn Ariels Sharons sem þykir sýna svo að ekki verður um villst að breytingar eru yfirvofandi. Fundurinn verður haldinn í bænum Sderot í suðurhluta Ísraels, en bærinn hefur margoft orðið fyrir flugskeytaárásum palestínskra skæruliða. Árásum hefur snarfækkað eftir að Mahmoud Abbas sendi palestínskar öryggissveitir út á götur Gasa á föstudag til að kveða niður skæruliða. Þessi skref eru smá en eru túlkuð á þann veg að betur horfi fyrir botni Miðjarðarhafs en í langan tíma.
Erlent Fréttir Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Sjá meira