Erlent

Tveir gripnir í áhlaupi lögreglu

Lögregla í Þýskalandi handtók tvo menn sem grunaðir eru um að skipuleggja hryðjuverkaárásir í Írak. Þeir voru gripnir í áhlaupi lögreglu á hús í borginni Mainz og er annar þeirra talinn vera háttsettur innan hryðjuverkasamtakanna al-Qaida. Haft er eftir saksóknara í borginni að fylgst hafi verið með mönnunum frá því í október og eiga þeir að hafa haft í hyggju að svíkja fé út úr tryggingum til þess að fjármagna sjálfsmorðsárásir og önnur verk. Ekki er langt síðan þýska lögreglan handtók 22 í leit sinni af öfgasinnuðum múslímum sem grunaðir eru um að aðstoða hryðjuverkahópa um allan heim.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×