Innlent

Hnútukast um bensínstyrk

Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir fjármálaráðherra hafa reynt að þvo hendur sínar af málinu á fundinum. „Þar sat fjármálaráðherra fyrir svörum með geislabaug og vængi og hengdi allt málið á heilbrigðisráðherra, Jón Kristjánsson, og gerði enga tilraun til að útskýra málið efnislega fyrir landsþingsfulltrúum. Siv sagði framsóknarmenn vera seinþreytta til vandræða og að þeir reyndu að sýna samstöðu með samstarfsflokknum í viðkvæmum málum þótt þeim þætti það ekki alltaf jafn auðvelt. „Við ætlumst til þess sama af forystu samstarfsflokksins... Nú tók hins vegar steininn úr og ég vil mótmæla því að málinu sé alfarið ýtt á Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra." Siv sagði að í landinu væru ekki tvær ríkisstjórnir. „Hér er ein ríkisstjórn. Þannig reynum við framsóknarmenn að haga okkur þó að okkur sé ansi illt í bakinu um þessar mundir." Árni Mathiesen sagði ýmislegt fráleitt hafa komið fram í umræðunum og kvaðst hissa á fyrrverandi ráðherrum sem ættu að -þekkja til verka. „Ég tek undir með Siv Friðleifsdóttur að það er ein ríkisstjórn í þessu landi og hún stendur auðvitað á bak við það." Árni taldi óeðlilegt að gera kröfu til ráðherra um endanlega gerð fjárlagafrumvarpsins þegar enn væri verið að ræða það í nefndum og eftir væru tvær umræður um það. „Man einhver eftir því að fjárlagafrumvarp hafi farið óbreytt í gegnum þingið?" Árni sagði ekkert óeðlilegt að gera breytingar á frumvarpinu en aðalatriðið væri að gæta aðhalds. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra sagði engan kost auðveldan. Hann væri búinn að ræða málið við forystumenn öryrkja og hygðist ljúka endurskoðun málsins fyrir aðra umræðu um fjár Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, var málshefjandi um störf þingsins í gær. Hann krafði Árna Mathiesen fjármálaráherra svara um það hvort hann ætlaði að fylgja samþykkt landsfundar Sjálfstæðisflokksins um að afnema ekki bensín-styrk öryrkja og aldraðra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×