Varnarliðsmenn skemmi leigubílana 31. júlí 2005 00:01
Leigubílstjórar á Suðurnesjum íhuga að hætta að þjónusta varnarliðsmenn á kvöldin og um helgar. Það hefur færst í aukana að þeir beri á sér ýmis vopn þegar þeir fara út að skemmta sér. Dæmi eru um að leigubílar séu skemmdir og lausum munum stolið. Tvö nýleg dæmi eru um að varnarliðsmenn hafi skorið á sæti leigubíla. Gunnar Pálsson er einn þeirra sem mátt hefur þola skemmdarverk og er hann í engum vafa um að þar hafi verið varnarliðsmenn á ferð því hann hafi ekki keyrt neina aðra sem beri hnífa á sér alla jafna. Skaðabótanefnd utanríkisráðuneytisins sér um að borga öll þau tjón sem varnarliðsmenn valda en þangað sendi Gunnar kröfu um bætur vegna skemmda á bifreið sinni, kröfu upp á 200 þúsund kr. Svörin voru alfarið neitandi að sögn Gunnars þar sem hann hefði ekki getað bent á þann sem á að hafa framið ódæðið. Þetta er ekki eina tilfellið um skemmd á leigubíl því varnarliðsmanni var gert að greiða leigubílstjóra skaðabætur eftir að hann hafði skorið stórt stykki úr sæti bílsins. Áhöldin sem notuð eru, og fundist hafa í bílum, eru hnífar af öllum stærðum og gerðum og segir Gunnar þá eingöngu koma frá varnarliðsmönnum. Gunnar segist óttast um líf sitt þegar hann aki varnarliðsmönnum á kvöldin og hann sé orðinn hræddur við að taka þá upp í. Þá er verið að ræða það á meðal leigubílstjóra að hætta að þjónusta þá á kvöldin og um helgar. Talsmaður varnarliðsins sagði í samtali við fréttastofu að þessi mál kæmu öðru hvoru upp. Ef hermenn verði uppvísir að slíkum verknaði sé þeim refsað í samræmi við alvarleika brotsins.
Fréttir Innlent Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira