Athugasemdir teknar til greina 31. júlí 2005 00:01
Forstöðumaður Rannsóknarnefndar flugslysa segir athugasemdir sérstakrar rannsóknarnefndar um flugslysið í Skerjafirði réttmætar og að þær hafi flestar þegar verið teknar til greina. Samgönguráðherra vill ekki segja orð um málið fyrr en á vinnudegi. Í skýrslu hinnar sérstöku rannsóknarnefndar eru gerðar fjórar tillögur um úrbætur á starfsháttum Rannsóknarnefndar flugslysa, sem lúta einkum að varðveislu flugvélaflaka og einstakra hluta þeirra auk þess sem mælst er til þess að hinn mannlegi þáttur í orsökum flugslysa verði kannaður sem nákvæmast. Rannsóknarnefndin er sátt við þessar athugasemdir að sögn Þormóðs Þormóðssonar, formanns hennar. Hann segir tillögurnar vel rökstuddar, uppbyggilegar og gagnlegar og miða að því að gera störf Rannsóknarnefndar flugslysa enn betri. Spjót nefndarinnar beinast nokkuð að Flugmálastjórn í skýrslunni. Átta tillögur um úrbætur eru gerðar sem snúast meðal annars um hert eftirlit með smærri flugrekendum, endurskoðun verklagsreglna um útgáfu lofthæfisskírteina, að hert verði á verklegri þjálfun flugmanna sem starfa hjá litlu flugfélögunum, hert eftirlit með því að farþegaskrár séu haldnar og fleira. Flugmálastjórn gerði athugasemdir við frumdrög skýrslunnar en ekki var tekið tillit til þeirra. Þormóður segir það ekki sitt að svara fyrir Flugmálastjórn, en hann geti bent á að í skýrslu Rannsóknarnefndar flugslysa hafi komið fram að nefndin taldi að kalla hefði átt eftir gögnum áður en gefið var út lofthæfisskírteini fyrir vélina. Það komi jafnframt fram í nýju skýrslunni. Rétt er að taka fram að hin sérstaka rannsóknarnefnd tók ekki undir þá athugasemd aðstandenda að flugumferðarþjónustu hefði verið ábótavant eins og sagt var í gær, heldur lagði hún aðeins til að hugað yrði að breyttu orðalagi flugumferðarstjóra ef hreyfill stöðvast í nánd við flugvöll til að fyrirbyggja misskilning. Fréttastofa hitti Sturlu Böðvarsson samgönguráðherra í dag en hann sagðist ekki myndu tjá sig nokkuð um málið fyrr en á vinnudegi.
Fréttir Innlent Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Fleiri fréttir „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif Sjá meira