Skuldir heimilanna aukast 28. júlí 2005 00:01
Skuldir heimilanna námu í árslok 2004 um 760 milljörðum og hafa vaxið um 15,2 prósent frá árinu á undan. Þetta kemur fram í yfirliti fjármálaráðuneytisins um helstu niðurstöður álagningar opinberra gjalda. Skuldir vegna íbúðakaupa jukust heldur minna eða um 12,6 prósent. Fjármálaráðuneytið birti í gær helstu niðurstöður álagningar einstaklinga og þeirra sem reka fyrirtæki í eigin nafni. Eignarskattur var lagður á í síðasta sinn í ár og nemur alls 2,8 milljörðum króna og hækkar um 30 prósent á milli ára sem fjármálaráðuneytið segir einkum skýrast af hækkun á fasteignamati milli ára. Þá hefur gjaldendum eignarskatts fjölgað um 8,8 prósent og greiða alls 75.600 eignarskatt í ár. Allar tölur um álagningu opinberra gjalda framteljenda að fyrirtækjum undansdkilum liggja nú fyrir en álagning opinberra gjalda á fyrirtæki liggja fyrir í lok október. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær nemur samanlögð álagning tekjuskatta og útsvars um 145 milljörðum króna í ár. Framteljendum fjölgar á landinu öllu uj 2,1 prósent en 4.772 fleiri einstaklingar telja nú fram en á síðasta ári. Hátekjuskatt greiða 17.456 framteljendur og greiða þeir um 1,4 milljarða króna en enda þótt að skatthlutfall hátekjuskattsins hafi verið lækkað frá fyrra álagningarári um eitt prósentustig, niður í 4 prósent, hækkar álagning á þessa gjaldendur um 3,9 prósent. Þá eru greiðendur fjármagnstekjuskatts tæplega 77 þúsund og fjölgar aðeins á milli ára. Fjármagnstekjur ríkisins eru að helmingi arðgreiðslur, vextir og leigutekjur en einnig söluhagnaður hlutabréfa en alls telja 11.400 fram slíkar tekjur.
Fréttir Innlent Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira