Eignir heimilanna 2000 milljarðar 28. júlí 2005 00:01
Gjaldstofn tekjuskatts og útsvars nam 526,8 milljörðum króna og hafði vaxið um 9,0% frá fyrra ári. Samanlögð álagning tekjuskatta og útsvars nemur 145,2 milljörðum króna og hækkar um 12,3% frá fyrra ári. Tæplega 158 þúsund framteljendur greiða samtals 67,1 milljarð króna í almennan tekjuskatt og skattgreiðsla á hvern gjaldanda hefur vaxið um 8,2% milli ára. Gjaldendur útsvars eru 226.896, eða nær 97% allra á grunnskrá framteljenda. Sérstakan tekjuskatt (hátekjuskatt) greiða 17.456 gjaldendur, samtals 1.411 milljónir króna. Þrátt fyrir að skatthlutfallið hafi verið lækkað frá fyrra álagningarári úr 5 í 4% hækkar álagning um 3,9%, og gjaldendum fjölgar um 16,5%. Álagður fjármagnstekjuskattur einstaklinga nemur 7,6 milljörðum króna og hækkar um 17,7% milli ára. Greiðendur fjármagnstekjuskatts eru liðlega 77 þúsund talsins og fjölgar lítillega milli ára. Rúmlega helmingur skattsins er álagning á arðgreiðslur, vexti og leigutekjur, en afgangurinn er álagning á söluhagnað hlutabréfa, en liðlega 11.400 framteljendur telja fram slíkar tekjur. Framtaldar eignir heimilanna námu tæplega 2.000 milljörðum króna í lok síðasta árs og höfðu þær aukist um 15,4% frá fyrra ári. Skuldir heimilanna námu alls um 760 milljörðum króna í árslok 2004 og höfðu þær vaxið um 15,2% frá fyrra ári. Barnabætur nema 5 milljörðum króna og eru sem næst óbreyttar milli ára. Þeim sem þeirra njóta fækkar um 2,8%. Vaxtabætur nema 5,2 milljörðum og eru þær óbreyttar milli ára. Framteljendum sem þeirra njóta fækkar um 6,7% og eru þeir um 54 þúsund. Af úthlutuðum vaxta- og barnabótum kemur 5,1 milljarður til útborgunar nú um mánaðarmótin eftir skuldajöfnum á móti ógreiddum sköttum. Til viðbótar verður greidd út ofgreidd staðgreiðsla af tekjum síðasta árs, samtals 2,4 milljarðar króna.
Fréttir Innlent Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira