Svikafyrirtæki eykur umsvifin hér 26. september 2005 00:01
Svikafyrirtækið European City Guide er enn starfrækt af fullum krafti hér á landi, að sögn Sigurðar Jónssonar, framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu. European City Guide fær forráðamenn fyrirtækja til að samþykkja skráningu í gagnabanka án endurgjalds. Síðan fá þeir sendar upplýsingar til að yfirfara og leiðrétta sem þeir staðfesta að lokum með undirskrift sinni. Með smáu letri stendur hins vegar að undirskriftin jafngildi pöntun á skráningu í þrjú ár og hún kosti allt að 90 þúsund krónur á ári. Sumir hafa glapist á að borga einu sinni og talið þar með að málið væri úr sögunni. "En það er síður en svo, því þá magnast þeir um allan helming og ganga harðar að fólki heldur en nokkru sinni fyrr, jafnvel með hótunum,"segir Sigurður og bætir við að svo virðist sem umsvif svikafyrirtækisins hér á landi séu enn að aukast ef marka megi þær hringingar sem komi til SVÞ. "Þeir virðast hafa tekið Ísland fyrir," segir Sigurður. "Reynsla okkar hefur verið sú að þessara svikara hefur orðið mest vart á vorin og sumrin. En ennþá eru fyrirtæki að hringja í mig vegna þeirra. Um er að ræða ríkisfyrirtæki, bæjarfyrirtæki, hótel úti á landi og ýmsa smærri aðila sem eru að lenda í þeim. Við höfum fengið símtöl í hverri viku síðastliðna tvo mánuðina, þar sem fólk er að spyrja hvernig það eigi að bregðast við rukkunum og hótunum frá þessu svikafyrirtæki." Sigurður segir að öllum sé ráðlagt það sama; að hafna í upphafi kröfunni þar sem undirritun þeirra hafi verið fengin með sviksamlegum hætti. Þeir eigi jafnframt að hundsa allar innheimtuaðgerðir svikafyrirtækisins og innheimtufyrirtækja þess. "Íslenskir lögmenn og innheimtufyrirtæki hafa verið vöruð við þessum aðila og beðnir um að taka ekki kröfur hans til innheimtu," segir Sigurður enn fremur. "Samtök í atvinnulífinu munu ef þörf krefur aðstoða aðildarfyrirtæki sem í slíku lenda, en ekki eru enn þekkt slík dæmi."
Fréttir Innlent Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent „Vissi ég að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Fleiri fréttir „Vissi ég að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Sjá meira