Fórnarlamba minnst við Indlandshaf 26. janúar 2005 00:01
Mánuði eftir flóðbylgjuna í Indlandshafi var þeirra sem fórust minnst í morgun, en víða er ástandið enn svo bágborið að engar athafnir fóru fram. Reynt er eftir fremsta megni að koma lífinu í gang á ný, en milljóna sem hafast við í tjaldbúðum bíður óviss framtíð. Skólastarf í Aceh-héraði á Súmötru hófst á ný í dag, mánuði eftir að flóðbylgja gekk þar yfir og olli gríðarlegri eyðileggingu. Skólabörn grétu mörg þegar þau mættu í skólana sína á ný og báðu fyrir þeim sem fórust. Talið er að 45 þúsund skólabörn séu meðal þeirra sem fórust í hamförunum. Í höfuðborginni Banda Aceh er ástandið enn slæmt í helmingi borgarinnar, sem þurrkaðist nánast út. Sá helmingur er nánast draugabær, rústir eins langt og augað eygir og þeir einu sem þar eru á ferð eru að safna þar skrani. Í hinum helmingi borgarinnar gengur lífið sinn vanagang. Þar má vart sjá að nokkuð hafi gerst. Kaffihúsin eru troðfull en greinilegt er að fólk er slegið vegna hamfaranna og hörmunganna. Alls eru 220 þúsund talin af eða þeirra saknað í Indónesíu. Á Srí Lanka söfnuðust hundruð saman á sjálfstæðistorginu í Kólombó til að minnast þeirra sem fórust, en utan höfuðborgarinnar er ástandið víða svo slæmt að þar var ekki tímabært að halda minningarathafnir. Fólk hefst við í tjöldum og veit ekki enn hvað bíður þess. Milljón börn eru til að mynda enn án heimilis og ekkert útlit fyrir að það breytist í bráð. Þau hafast við í bráðabirgðaskýlum og þiggja mat frá hinu opinbera. Nú er mánuður liðinn frá hamförunum og börnin hafa ekkert fengið nema hrísgrón og linsubaunir og óttast er að verði ekkert að gert fari næringarskortur að gera vart við sig fljótlega. Þá er drykkjarvatn einnig af skornum skammti og hreinlæti mjög ábótavant.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfinn Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fleiri fréttir Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Sjá meira