Klikkaður í rúminu eða nauðgari? 26. júlí 2005 00:01
Ertu klikkaður í rúminu eða bara ósköp venjulegur nauðgari? Farin er af stað herferð gegn nauðgunum vegna verslunarmannahelgarinnar sem óðum nálgast en aldrei er of varlega farið. Á síðasta ári komu 113 nauðgunarmál inn á borð til Stígamóta og sjö hópnauðganir. Björg Gísladóttir hjá Stígamótum segir verslunarmannahelgina í raun bjóða þeim sem ætla sér að nauðga upp á kjöraðstæður þar sem mikið er af ungu fólki að skemmta sér en á síðasta ári voru rúmlega 35% þeirra sem nauðguðu eða frömdu sifjaspell 19-29 ára. Þá segir hún svokallaðar lyfjanauðganir koma upp á hverju ári og aldrei sé of varlega farið. Nauðgunarlyfin sem eru notuð gera fórnarlambið sljótt og geta jafnvel valdið minnisleysi. Róhipnól er eitt þessara lyfja en það er ávísað af lækni sem svefnlyf. Rannveig Gunnarsdóttir, forstjóri Lyfjastofnunar, segir það mjög gagnlegt. Það sé notað í Evrópu en aftur á móti bannað í Bandaríkjunum vegna möguleikanum á að misnota það. Nú fyrir helgina standa V-dagssamtökin fyrir herferð gegn nauðgunum og má finna veggspjöld á strætóskýlum og auglýsingar í blöðunum sem eiga að vekja fólk til umhugsunar. Markmið herferðarinnar eru skýr að sögn Ingibjargar Stefánsdóttur: að fólk beri virðingu fyrir hvert öðru, þekki muninn á kynlífi og nauðgunum og taki ekki þátt í neinu sem það vilji ekki taka þátt í. Þá hafa Samtökin 78 í samstarfi við Landlæknisembættið ákveðið að dreifa 50 þúsund smokkum á skemmtistaði víðs vegar um landið á næstu þremur mánuðum eða eftir því sem birgðir leyfa. Þetta átak þeirra kostar vel á aðra milljón króna og er liður í því að ýta undir að Íslendingar noti varnir. Það er því vonandi að allir fari varlega um komandi helgi og gangi hægt um gleðinnar dyr.
Fréttir Innlent Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira