Verður að efna ólöglega samninga? 26. júlí 2005 00:01
Verður að efna ólöglega samninga og sleppa þeir sem þá gera við öll viðurlög ef þeim tekst að fela brotið nógu lengi? Að því spyr Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður og vísar í niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins í máli fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum. Sá fær tugi milljóna í vasann, þrátt fyrir að Fjármálaeftirlitið hafi úrskurðað samning þess efnis ólögmætan. Þegar Jóhannes Siggeirsson lét af stöfum hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum í febrúar kom í ljós viðaukasamningur við ráðningarsamning hans sem kveður á um laun í tvö ár eftir að uppsagnarfresti lauk upp á um fjörutíu milljónir króna. Fjármálaeftirlitið gagnrýndi samninginn harðlega, taldi hann lögbrot, en sagði að ekkert væri hægt að aðhafast því málið væri fyrnt. Framkvæmdastjórinn fyrrverandi fær því sitt, tveggja ára laun án nokkurrar vinnu. Á þessu er Kristinn H. Gunnarsson forviða og spyr á heimasíðu sinni hvort það „ ...beri þá að skilja Fjármálaeftirlitið svo, að menn geti gert ólöglega gjörninga og ráðstafað í heimildarleysi eigum sem þeim er trúað fyrir og samt sé það mat Fjármálaeftirlitsins, að bæði verði að efna hina ólöglegu samninga og að þeir sem frömdu lögbrotin sleppi við öll viðurlög ef þeim tekst að fela brotið nógu lengi?“ Kristinn fer fram á að Fjármálaeftirlitið skýri niðurstöðu sína frekar. Hann spyr meðal annars hvort sjóðurinn eigi þá engar kröfur á hendur hinum brotlegu. Nýráðinn forsjtóri Fjármálaeftirlitsins, Jónas Friðrik Jónsson, sagði í samtali við fréttamann í dag að hann myndi ekki svara spurningum Kristins. Hann líti svo á að málinu sé lokið af hálfu Fjármálaeftirlitsins.
Fréttir Innlent Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira