Róttækustu breytingar í sögu SÞ 21. mars 2005 00:01
Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, kynnti hugmyndir sínar um breytingar á skipulagi og stefnu samtakanna fyrir Allsherjarþinginu í gær. Um er að ræða róttækustu breytingar á samtökunum síðan þau voru stofnsett árið 1945. Nái breytingarnartillögur Annan fram að ganga er ljóst að áherslur SÞ á sviði mannréttinda, þróunarmála og öryggismála munu skerpast og breytast verulega. Fyrirhugaðar kerfisbreytingar á öryggisráðinu hafa vakið einna mesta athygli af tillögum Annan. Þær eru afrakstur vinnu sérfræðinganefndar sem skipuð er gamalreyndum stjórnmálamönnum á borð við Gro Harlem Brundtland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs og voru kynntar í vetrarbyrjun. Tvær tillögur eru einkum til skoðunar og miða báðar að því að láta ráðið endurspegla íbúadreifingu heimsins betur. Önnur tillagan gerir ráð fyrir að sex þjóðir fái fast sæti í ráðinu til viðbótar við þær fimm sem þegar búa við slíkt þó án neitunarvalds, en hin felur í sér að átta veigamikil ríki skiptist á að sitja í ráðinu með reglulegu millibili. Annan stingur upp á að innan vébanda SÞ verði komið á fót sérstöku mannréttindaráði sem mun leysa af hólmi mannréttindanefndina í Genf. Ráðinu yrðu færð umtalsverð völd þannig að vægi þess yrði svipað og öryggisráðsins. Baráttan gegn hryðjuverkum er fyrirferðarmikil í tillögum Annan. Hann skorar á þjóðir heims að hætta hártogunum um skilgreiningu á hryðjuverkum og fallast á að dráp á óbreyttum borgurum geti ekki undir neinum kringustæðum verið réttlætanlegt. Á grundvelli þeirrar skilgreiningar hvatti hann til að nýr sáttmáli gegn hryðjuverkum yrði samþykktur á næsta ári. Tillögur Annan eru settar fram rétt áður en skýrsla um meinta spillingu SÞ í Írak verður kynnt. Kofi Annan og Kojo, sonur hans, liggja undir ámæli um að hafa misnotað aðstöðu sína þegar Írökum var leyft að selja olíu fyrir mat og lyf á árunum 1996-2003. Búist er við þjóðarleiðtogar heimsins taki ákvörðun um tillögur annan á fundi sínum í september á þessu ári.
Erlent Fréttir Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Sjá meira