Keppst um nýja Landspítalalóð 28. apríl 2005 00:01
Fulltrúar sjö hópa sem keppa um skipulag nýrrar lóðar Landspítala við Hringbraut fengu afhenta samkeppnislýsingu í dag. Heilbrigðisráðherra segir að sameining allrar starfsemi spítalans undir eitt þak muni kosta þrjátíu og sex milljarða króna. Ágóði af sölu Símans verði líklega notaður til að fjármagna verkið. Lóðin undir húsakynnin, þar sem öll starfsemi Landspítala - Háskólasjúkrahúss verður sameinuð undir einu þaki, er tæplega sautján og hálfur hektari að stærð. Hún afmarkast að norðan af Eiríksgötu, Barónsstíg og gömlu Hringbraut, og að sunnan af nýrri Hringbraut. Sjö hópar völdust úr forvali til þess að keppa um að fá að skipuleggja verkið og samanstendur hver og einn þeirra af bæði innlendum og erlendum aðilum. Hóparnir verða að skila tillögum sínum til sjö manna dómnefndar fyrir níunda september. Dómnefndin, sem starfar undir formennsku Ingibjargar Pálmadóttur, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, tilkynnir svo niðurstöðu sína þann sjötta október. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra segir að framkvæmdin við að sameina alla starfsemi Landspítalans á einn stað muni í heild sinni kosta um þrjátíu og sex milljarða króna. Fyrsti áfanginn, sem snýr að sameiningu bráðadeildanna við Hringbraut, á að kosta á milli tólf og fjórtán milljarða króna. Ágóði af sölu Símans verður líklega notaður til að fjármagna verkið. Aðspurður hvort náist sátt um það segist ráðherrann halda að víðtæk sátt sé um að ráðast í þetta verkefni.
Fréttir Innlent Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjá meira