Ekki á olíumarkaðinn bætandi 30. ágúst 2005 00:01
Það var ekki á þaninn olíumarkaðinn bætandi að fá annan eins fellibyl yfir Mexíkóflóa, segir innkaupastjóri Esso, sem telur að Katrín muni hafa töluverð áhrif á olíuverð til lengri tíma. Ekkert hefur verið ákveðið um verðhækkanir hérlendis. Olíuverð hefur rokið upp þar sem þurfti að loka fjölmörgum olíuborpöllum, hreinsistöðvum og höfnum áður en Katrín óð yfir með allan sinn eyðileggingarmátt. En hvaða áhrif hefur hún til lengri tíma? Magnús Ásgeirsson er innkaupastjóri olíufélagsins Esso og hefur fylgst sérstaklega vel með markaðnum undanfarna daga. Hann segir að búist hafi verið við því að verð hækkaði, en menn á markaði hafi haldið því fram að það muni hugsanlega vanta olíu á markað eftir nokkra daga. Nú sé ekki skortur á olíu en ef framleiðsla minnki um 2,5 milljónir tunna á dag fyrir Bandaríkjamarkað, eins og útlit sé fyrir, þá muni það hafa mjög mikil áhrif. Hér sé ekki bara um spákaupmennsku að ræða. Magnús bendir á að á síðustu misserum hafi olíuverð verið mjög hátt og segir að á síðasta ári, þegar fellibylurinn Ívan gekk yfir Bandaríkin, hafi framboð á olíu úr Mexíkóflóa minnkað um 45 milljónir tunna næstu sex mánuði á eftir og þar með fram á þetta ár. Þess má geta að Katrín var enn öflugri en Ívan. En var ekki olíumarkaðurinn þaninn fyrir, hreinsunarstöðvar höfðu varla undan og verð hafði hækkað? Magnús játar því og segir fellibylinn ekki á ástandið bætandi. Fyrir nokkrum vikum hafi menn alls ekki séð fram á fellibylinn, Nú fari í hönd mesta ferðahelgi sumarsins í Bandaríkjunum, eins konar verslunarmannahelgi, með tilheyrandi olíuþörf og markaðurinn hafi engan veginn þolað þær óvæntu fréttir sem borist hafi með fellibylnum Katrínu. Spurður hvort til standi að hækka verð á bensíni og olíu vegna ástandsins og hvort fellibylurinn muni hafa áhrif á efnahagslíf heimsins segir Magnús að engin ákvörðun hafi verið tekin um hæækun olíuverðs á þessu stigi en hann hafi séð í morgun að menn hefðu verulegar áhyggjur af því í Japan hvaða áhrif fellibylurinn hefði á efnahagskerfið þar og Asíuríki almennt því að ljóst sé markaðurinn þoli ekki svo hátt olíuverð til lengri tíma. Magnús segir að það séu þó ljósir punktar í myrkrinu. Bandaríkjastjórn ætli að setja meira af sínum varabirgðum inn á markaðinn, Sádi-Arabía ætli að auka framleiðslu um hálfa milljón tunna og sömuleiðis Nígería. Allar slíkar fréttir eigi að slá á olíuverð en það hafi nú verið nógu hátt fyrir þó að það bættust ekki við fréttirnar af áhrifum fellibylsins.
Fréttir Innlent Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fleiri fréttir Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Sjá meira