Sport

Vill enska leikmenn í sínu liði

Jose Mourinho, framkvæmdastjóri Chelsea, segir að enskir leikmenn munu ávallt verða hluti af hans leikmannahópi og hann muni aldrei endurtaka þann leik sem Arsene Wenger hjá Arsenal lék um síðustu helgi þegar allur leikmannahópur hans var skipaður erlendum leikmönnum. "Ég hef mikla trú á heimamönnum og mun alltaf hafa 3-4 slíka í mínum hóp. Sem erlendur knattspyrnustjóri finn ég fyrir ábyrgð gagnvart enskum félögum og enska landsliðinu og það verður að vera hægt að sýna ungum leikmönnum að þeir geti náð langt hjá Chelsea. Það hjálpar að hafa enska leikmenn," segir Mourinho.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×