Ný krufningarskýrsla ekki heimiluð 26. ágúst 2005 00:01
Sakborningurinn sem hefur verið ákærður fyrir að verða öðrum manni að bana á kránni Ásláki í Mosfellsbæ í desember í fyrra hefur krafist þess að sérstakir matsmenn verði kvaddir til að fara yfir krufningarskýrsluna í málinu. Héraðsdómari hafnaði kröfunni sem lögð var fram að verjanda ákærða, Björns Ólafs Hallgrímssonar, í málinu sem kallað hefur verið Ásláksmálið. Verjandinn ákvað að skoða framhald málsins og hefur frest fram á mánudag til að kæra úrskurð héraðsdómara. Aðalmeðferð málsins fer fram 18. október næstkomandi en í því er maður á þrítugsaldri ákærður fyrir stórfellda líkamsárás á mann á sextugsaldri sem lést eftir að hafa fengið hnefahögg á hálsinn frá ákærða. Verjandinn byggði kröfu sína á því að framlögð krufningarskýrsla væri grundvallargagn í málinu og ætti að byggjast á frumgögnum en ekki á frásögn í lögregluskýrslum líkt og raunin væri. Skýrslugjafi hefði byggt niðurstöður sínar á upplýsingum í lögregluskýrslu en ekki eingöngu á rannsókninni sjálfri eins og rétt væri að gera. Réttarmeinafræðingur hefði því ekki gætt nægilegs hlutleysis við samningu skýrslunnar að mati verjanda og skjólstæðings hans. Að mati ákæruvaldsins var þetta hins vegar talið ótækt þar sem matsbeiðnin fæli í sér beiðni um endurskoðun á mati réttarmeinafræðings. Niðurstaða héraðsdóms var sú að ekkert væri fram komið á þessu stigi málsins sem gæfi ástæðu til að dómkveðja matsmenn til að leggja mat á atriði er vörðuðu dánarorsök hins látna þar sem ljóst er að teknar verða skýrlsur af réttarmeinafræðingi, heimilislækni og öðrum við aðalmeðferð málsins. Arnfríður Einarsdóttir, settur héraðsdómari, kvað upp úrskurðinn.
Fréttir Innlent Mest lesið Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Innlent Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Erlent Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Innlent Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það Innlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Innlent Nýjustu tölur í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Svona nýttu oddvitarnir sínar tuttugu sekúndur Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Kjördagur runninn upp Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Nýjustu tölur í Reykjavík Nýjustu tölur í Kópavogi Nýjustu tölur í Hafnarfirði Nýjustu tölur úr Garðabæ Nýjustu tölur í Reykjanesbæ Nýjustu tölur á Akureyri Nýjustu tölur í Árborg Nýjustu tölur í Mosfellsbæ Nýjustu tölur á Akranesi Nýjustu tölur í Múlaþingi Nýjustu tölur í Fjarðabyggð Nýjustu tölur í Vestmannaeyjum Nýjustu tölur í Skagafirði Nýjustu tölur í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps Nýjustu tölur í Ísafjarðarbæ Nýjustu tölur í Hveragerði Nýjustu tölur í Norðurþingi Nýjustu tölur í Ölfusi Nýjustu tölur í Sveitarfélaginu Hornafirði Nýjustu tölur í Fjallabyggð Nýjustu tölur í Rangárþingi ytra Nýjustu tölur úr Rangárþingi eystra Nýjustu tölur í Suðurnesjabæ Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Sjá meira