Abbas kallar eftir vopnahléi 15. janúar 2005 00:01
Mahmoud Abbas, nýkjörinn forseti Palestínumanna, kallaði eftir vopnahléi þegar hann var settur inn í forsetaembættið í morgun. Hann fordæmdi drápin og ofbeldið sem viðgengist hefur í deilu Ísralesmanna og Palestínumanna undanfarin ár og sagði að því yrði að linna ef nokkur möguleiki ætti að vera á friðarviðræðum. Abbas kallaði eftir samvinnu við Ísraela og sagði nauðsynlegt að snúa við blaðinu í samskiptum nágrannaþjóðanna. Rétt áður en Abbas var settur inn í embættið voru sex Ísraelsmenn drepnir á landamærunum að Gasasvæðinu. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, fyrirskipaði í kjölfarið embættismönnum sínum að slíta öll tengsl við nýja ríkisstjórn Palestínumanna þar til hún hefði bundið enda á hryðjuverkaárásir. Sharon hyggst ekki ræða við Abbas fyrr en hann lætur til skara skríða gegn herskáum Palestínumönnum. Við athöfnina í morgun þegar Abbas var settur inn í embættið kallaði hann eftir vopnahléi við Ísraela og viðræðum sem myndu leiða til endanlegs friðarsamkomulags. Hann fordæmdi árásirnar á Ísralesmennina sex í gær og sagði nauðsynlegt að binda enda á þennan vítahring ofbeldis. En áfram heldur ofbeldið - aðeins skömmu eftir athöfnina í morgun skutu ísraelskir hermenn tvo Palestínumenn til bana í austurhluta Gasaborgar í morgun. Háttsettur ísraelskur embættismaður segir að Ísraelsmenn muni áfram bregðast hart við öllum árásum.
Erlent Fréttir Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Sjá meira