Þrautaganga Abbas hafin 15. janúar 2005 00:01
Óvíst er hvaða áhrif mannskæð árás palestínskra vígamanna á ísraelska verkamenn aðfaranótt föstudags hefur á fyrirhugaðar friðarviðræður Ísraela og Palestínumanna. Sex Ísraelar féllu fyrir hendi vígamannanna áður en árás þeirra var hrundið og þrír vígamannanna drepnir. Árásin í gærmorgun var gerð tæpum sólarhring eftir að Mahmoud Abbas, sem í dag tekur við embætti forseta palestínsku heimastjórnarinnar, lýsti því yfir að hann vildi standa við allar skuldbindingar sem Palestínumenn tóku á sig þegar þeir samþykktu vegvísinn til friðar, þeirra á meðal þá að Palestínumenn hættu árásum á Ísraela. Sama dag sagði einn leiðtoga Hamas koma til greina að hætta árásum á Ísraela. Ísraelar brugðust skjótt við árásinni og lokuðu landamærunum að Gazaströndinni. Þeir sögðust þó bíða með að grípa til hefndaraðgerða. Tzipi Livni, dómsmálaráðherra Ísraels, sagði eftir árásina að ísraelsk stjórnvöld myndu gefa Abbas meiri tíma til að takast á við herskáar hreyfingar Palestínumanna. Húsnæðismálaráðherrann Yitzhak Herzog varaði hins vegar við því að þolinmæði Ísraela væri ekki endalaus. "Ísrael mun ekki sætta sig við stöðugar hryðjuverkaárásir á saklausa borgara. Abu Mazen fær ekki hundrað daga frest," sagði Herzog. Abu Mazen er auknefni Abbas. Þrenn samtök vígamanna lýstu ábyrgð á hendur sér, þeirra á meðal Hamas og Al Aqsa píslarvættirnar sem tengjast Fatahhreyfingu Abbas. Árásin er fyrsta meiriháttar andstaðan sem herskáar hreyfingar Palestínumanna sýna Abbas, sem hefur mælst til þess að Palestínumenn láti af ofbeldi í baráttu sinni fyrir sjálfstæði. Sami Abu Zuhri, talsmaður Hamas, sagði árásina hins vegar alls ekki skilaboð til Abbas, heldur áminningu til Ísraela. Lokun landamæranna kemur sér afar illa fyrir íbúa Gaza. Þar með er komið í veg fyrir flutning vöru til og frá svæðinu auk þess sem það lokar á möguleika Palestínumanna til að sækja vinnu í Ísrael.
Erlent Fréttir Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Innlent Fleiri fréttir „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Sjá meira