Ekki ráðinn nýr umboðsmaður 29. september 2005 00:01 "
Mér finnst líklegra að þeim fjármunum sem ætlaðir eru til umboðsmanns íslenska hestsins verði varið til einhverrar stofnunar sem er að vinna að markaðsmálum íslenska hestsins og að það verkefni verði til þar inni. Samið verði um að vinna það með sendiráðum, útflytjendum og öðrum sem að útflutningsmálum koma." Þetta segir Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra um skipan mála eftir að Jónas R. Jónsson, umboðsmaður íslenska hestsins, hefur sagt upp störfum. Jónas sagði upp á þriðjudaginn en ætlar að vinna út uppsagnarfrestinn fram að áramótum. Guðni segist telja, að Jónas hafi unnið að mörgum góðum verkefnum, ekki síst varðandi atvinnuleyfi tamningamanna í Bandaríkjunum sem sé mikill áfangi fyrir íslenska hestamenn. Þá megi nefna lausn hinnar miklu deilu um skattamál við Þjóðverja sem umboðsmaður hafi komið verulega að. "Enn eru þrjú ár eftir af þessu verkefni," segir ráðherra. "Því verður haldið áfram en alveg eins getur komið til greina að Útflutningsráð eða einhver annar aðili geti tekið markaðsþáttinn inn til sín." Verkefni umboðsmanns byggir á samkomulagi landbúnaðarráðherra, samgönguráðherra og utanríkisráðherra. Auk framangreindra ráðuneyta eru Flugleiðir og KB -banki stuðningsaðilar verkefnisins. Í verkefnið eru ætlaðar 11-12 milljónir á ári. "Það náðist ekki pólitísk samstaða stjórnvalda um að leggja verkefninu til það fé sem lagt var upp með," segir Jónas R. Jónasson, spurður um ástæður þess að hann láti nú af starfi sem umboðsmaður íslenska hestsins. "En fjármagnsþörfin fer eftir því hvað menn vilja gera, hvaða árangri þeir vilja ná og á hvað löngum tíma. Ég skil við þetta starf sáttur við guð og menn." Spurður hvað Jónas ætti við þegar hann ræddi um skort á pólitískri samstöðu til að þeim fjármunum í verkefnið sem lagt hefði verið upp með svaraði landbúnaðarráðherra: "Ég átta mig ekki á því. Það var gerður skriflegum samningur og fjármunirnir nýttir sem slíkir til þessa verkefnis."
Fréttir Innlent Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Sjá meira