Sextíu manns í gíslingu í Írak 16. apríl 2005 00:01
Mannræningjar í Írak halda sextíu manns í gíslingu skammt frá Bagdad og hóta að drepa alla gíslanna yfirgefa ekki allir sjítar svæðið þegar í stað. Herlið Bandaríkjanna og Íraks vinnur að því að semja við mannræningjana um að sleppa gíslunum sem allir eru sjítar úr bænum Madaen. Þar hafa átök á milli sjíta og súnníta verið hörð og harðnað undanfarið. Mannránin í gær eru ekki þau fyrstu heldur einungis síðasta dæmið í langri röð mannrána sem virðast oft framin í hefndarskyni fyrir mannránið á undan. Auk mannrána segja fréttaritarar í Madaen að byssumenn úr röðum súnníta hafi hrakið nokkurn fjölda sjítafjölskyldna frá heimilum sínum í nótt. Á liðnum dögum hafa mannrán og sprengjuárásir kostað 34 hið minnsta lífið. Eftir kosningarnar í janúar fækkaði árásum um 20 prósent eða svo en á undanförnum dögum hefur þeim stórfjölgað á ný. Írakskir embættismenn segja við Reuters-fréttaþjónustuna að sú staðreynd að ellefu vikum eftir kosningar sé ekki enn komin starfhæf ríkisstjórn sé vindur í segl uppreisnar- og hryðjuverkamanna sem sjái tækifæri til að grafa undan stjórninni áður en hún hefur verið mynduð. Að auki dragist fyrir vikið að takast á við verkefni stjórnarinnar en efst á blaði er að taka á andspyrnunni og sívaxandi vanda tengdum skipulögðum glæpum. Raunar geta írakskir lögreglumenn sér til um að mannránin í Madae tengist jafnvel skipulögðum glæpum. Á liðnu ári hefur yfir fimm þúsund Írökum verið rænt og lausnargjalds krafist. Átökin í Madaen, segja íröksku lögreglumennirnir, gætu því hugsanlega verið átök tveggja glæpagengja sem berjast um yfirráðasvæði.
Erlent Fréttir Mest lesið Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent Lögreglan leitar að Cezary Innlent Mokgræðir á rafmyntum Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Innlent „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Innlent Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Erlent Séra Þórir Stephensen er látinn Innlent Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Innlent Fleiri fréttir Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Börn sem fæðast í Bandaríkjunum áfram talin bandarísk Mega banna trans konum að stunda keppnisíþróttir Úkraínskur auðkýfingur særðist í sprengjutilræði í Mónakó Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Sjá meira