Kærustupar selur græjur á netinu 28. ágúst 2005 00:01
Vefverslunin portus.is tók nýlega til starfa en í gegnum hana er hægt að kaupa hljómtæki af ýmsum stærðum og gerðum. Eigendur portus.is eru kærustuparið Drengur Óla Þorsteinsson og Jóna Benný Kristjánsdóttir sem búsett eru á Höfn í Hornafirði. Þaðan er Jóna Benný en Drengur Óla er ættaður frá Þórshöfn á Langanesi. "Ég bjó í Svíþjóð og fylgdist með miklum uppgangi í allri vefverslun, ekki síst með hljómtæki," segir Drengur Óla sem lengi hefur haft áhuga á allra handa græjum. Þegar hann fluttist til Íslands á ný kannaði hann hvernig ástatt væri á net-hljómtækjamarkaðnum og afréð í framhaldinu að opna vefverslun með Jónu Benný. "Ég varð mér úti um tölvukerfi og hafði samband við framleiðendur og úr varð portus.is," segir Drengur Óla. Vörumerkin sem þau skötuhjúin bjóða til kaups eru fæstum Íslendingum vel þekkt en þau eru til dæmis kínversku tækin CAV og Xindak, Yamakawa frá Þýskalandi og MarcusCables og Dynavoice frá Svíþjóð. Drengur Óla efast ekki um gæði þessara tækja og fullyrðir að í sumum tilvikum sé um sömu vöru að ræða og seld er í verslunum á Íslandi undir öðrum vörumerkjum. "Kína er að verða helsta framleiðsluland heimsins og næstum öll raftæki eru framleidd þar. Og oft eru sömu tæki smíðuð fyrir mismunandi vörumerki." Drengur Óla segir þau Jónu Benný geta boðið mjög hagstætt verð því vörurnar fari til kaupanda nánast milliliðalaust frá verksmiðjunni. Þau taka þó sitt eins og gengur. Vörunum verður dreift með Póstinum og segist Drengur Óla verða mjög svekktur ef þær berast ekki kaupendum einum til tveimur sólarhringum eftir viðskiptin.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Fleiri fréttir Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Sjá meira