Hlupu frá slysstað 28. ágúst 2005 00:01
Klukkan 07:05 barst lögreglu tilkynning frá vegfaranda að bifreið hefði farið útaf Ólafsfjarðarvegi skammt norðan við bæinn Hvamm og hefðu 2 menn verið í bifreiðinni. Í tilkynningunni kom einnig fram að menn þessir væru nú á gangi til norðurs eftir Ólafsfjarðarvegi. Er lögregla kom á vettvang voru menn þessir hvergi sjáanlegir en upplýsingar bárust lögreglu að sést hefði til ferða þeirra við útihús á bæ í nágrenninu og var ljóst að piltar þessir ætluðu ekki að lenda klóm lögreglunnar í þetta skiptið. Leitaði lögreglan mannanna í dágóða stund á því svæði sem talið var að þeir héldu sig en án árangurs. Var því skipulagðri leit hætt en vakt höfð áfram á svæðinu sem skilaði því að laust fyrir hádegi sást til ferða mannanna á Ólafsfjarðarvegi skammt frá þeim stað er óhappið var og voru þeir handteknir, kaldir og blautir eftir að hafa haldið kyrru fyrir í fjallshlíðinni í um 5 klukkustundir. Voru þeir færðir á lögreglustöðina á Akureyri þar sem frekari rannsókn málsins fór fram. Fram kom í máli þeirra að þar sem þeir hafi verið á lánsbifreið hafi þeir orðið svo skelkaðir og hræddir að þeir hafi ekki vitað sitt rjúkandi ráð og því flúið af vettvangi og hírst í skógarkjarri þar skammt frá þar til kuldinn var þeim óbærilegur og þeir hafi því komið sér aftur niður á veg. Þess má geta að lofthiti á þessum slóðum var um 4 gráður og svalt í veðri. Málið telst því upplýst og eigandi bifreiðarinnar búinn að fá hana í hendur aftur en í heldur verra ásigkomulagi en hún var þegar hún var lánuð.
Fréttir Innlent Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira