Vopnahlé eftir fjögurra ára stríð 7. febrúar 2005 00:01
Samningamenn Ísraela og Palestínumanna komust í gær að samkomulagi um vopnahlé í rúmlega fjögurra ára löngu stríði þeirra sem kostað hefur þúsundir Palestínumanna og Ísraela lífið. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, og Mahmoud Abbas, forseti palestínsku heimastjórnarinnar, undirrita samkomulagið á fundi sínum í Egyptalandi í dag. "Mikilvægast af öllu á fundinum er sameiginleg yfirlýsing um að hætta ofbeldisverkum gegn hvorum öðrum," sagði Saeb Erekat, helsti samingamaður Palestínumanna, eftir að samkomulag náðist í gær. Fram að því höfðu embættismenn úr röðum hvort tveggja Palestínumanna og Ísraela varað við því að of miklar vonir yrðu bundnar við fundinn í dag. Meðal þeirra atriða sem er að finna í samkomulaginu er ákvæði um skipun sameiginlegrar nefndar sem ákveður hvaða skilyrði palestínskir fangar í ísraelskum fangelsum þurfi að uppfylla til að verða leystir úr haldi. Nefnd verður einnig skipuð til að hafa yfirumsjón með brotthvarfi ísraelskra hersveita frá borgum á Vesturbakkanum. Ísraelar vöruðu í gær við því að herskáir Palestínumenn kynnu að reyna að koma í veg fyrir árangur af fundinum. Shaul Mofaz, varnarmálaráðherra Ísraels, sagði í viðtali við útvarpsstöð Ísraelshers að leyniþjónustunni hefðu borist upplýsingar um að sumir hópar vígamanna, þeirra á meðal líbönsku samtökin Hezbollah, kynnu að reyna að hleypa fundinum upp og sagði ekki útilokað að reynt yrði að ráða Abbas af dögum. "Við verðum mjög virk," sagði Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og hét stuðningi stjórnar sinnar við friðarferlið í Mið-Austurlöndum. Hún hefur rætt við Sharon og Abbas síðustu dag. Hún sagði Sharon að hann þyrfti að taka erfiðar ákvarðanir til að koma á friði. Eftir að hún fundaði með Abbas í gær skipaði hún öryggisráðgjafa sem hefur yfirumsjón með formbreytingum palestínskra öryggissveita og hét Palestínustjórn styrk að andvirði 2,5 milljarða króna til atvinnuuppbyggingar og til að byggja upp innviði.
Erlent Fréttir Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Sjá meira