Meirihluti Íraka hyggst kjósa 21. janúar 2005 00:01
Yfirgnæfandi meirihluti Íraka ætlar að mæta á kjörstað 30. janúar þrátt fyrir mannskæðar árásir vígamanna undanfarið, ef marka má skoðanakönnun sem unnin var fyrir bandarísku samtökin International Republican Institute. Samkvæmt henni segja fjórir af hverjum fimm kjósendum líklegt að þeir kjósi. Lítillega hefur þó dregið úr fjölda þeirra sem segja mjög líklegt að þeir kjósi. Í nýju könnuninni, sem var gerð í desember og janúar, segja 64 prósent mjög líklegt að þau kjósi, sjö prósentustigum minna en í nóvember. Enn ein mannskæð sprengjuárásin var gerð í Bagdad í gær. Þá var bílsprengja sprengd fyrir framan mosku sjíamúslima meðan fólk var við bænir. Í það minnsta fjórtán létust og 40 særðust í árásinni, að sögn lögreglu og starfsmanna sjúkrahúsa. Abu Musab al-Zarqawi, leiðtogi alræmdra hryðjuverkasamtaka, sendi frá sér upptöku þar sem hann fordæmdi sjíamúslima fyrir samstarf við bandaríska hermenn. "Þeir brutust inn í athvörf guðs, þeir svívirtu þau og hengdu upp myndir af djöfli sínum, al-Sistani," sagði hann. Ayatollah Ali al-Sistani er helsti leiðtogi sjíamúslima.
Erlent Fréttir Mest lesið Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Erlent Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Innlent Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Erlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Innlent Fleiri fréttir Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Sjá meira