Fórnarlömb hamfaranna þurfa vinnu 21. janúar 2005 00:01
Vinna er það sem fórnarlömb hamfaranna í Suðaustur-Asíu þurfa helst á að halda. Annars er hætta á að fólk venjist matargjöfum og að frumkvæði lognist út af. Þetta er mat stjórnenda hjálparstarfs á svæðinu, sem segja uppbyggingarstarf nú taka við af neyðarhjálp. Þyrlur og flugvélar sem dreifa hjálpargögnum voru á jörðinni í morgun og óvenjuleg þögn var í Aceh-héraði þegar forseti Indónesíu leiddi þar bænir. Susilo Judhojoni segir tímabært að hefja uppbyggingu í héraðinu á ný, að deilendur þar taki höndum saman og friður ríki. Talsmenn Sameinuðu þjóðanna eru sammála og segja fyrsta skrefi neyðarhjálpar nú nánast alls staðar lokið og næsta skref taki við. Það miðar að því að koma fólki á ný til vinnu, börnum til skóla og að hefja daglegt líf á ný. Talsmenn hjálparstofnana leggja einmitt mikla áherslu á það og segja annars hætt við að fólk venjist matargjöfum og að lifa á því sem dreift er. Í þessu augnamiði hefur verið komið á vinnuáætlunum þar sem flóttamenn og önnur fórnarlömb flóðbylgjunnar geti unnið sér inn matvæli og önnur gögn. Með þessu er tryggt að frumkvæði lognist ekki út af meðal fólksins. Neyðaraðstoð á Ache-héraði í Indónesíu miðar nú að því að fólk fái öll nauðsynleg næringarefni úr fæðu en ekki bara magafylli af hverju sem er. Nær allir sem voru matarþurfi hafa nú fengið mat en að sögn yfirnæringarfræðings Sameinuðu þjóðanna er óttast að neysla einhæfrar fæðu valdi því að fórnarlömb hamfaranna séu síður fær um að verjast sjúkdómum. Til að mynda geti skortur á A-vítamíni leitt til blindu. Hann segir að í fyrstu hafi verið nóg að dreifa núðlum og hrísgrjónum en nú sé í óða önn verið að dreifa fiski í dós, A-vítamínbættri matarolíu og vítamínríkum kexkökum. Á Srí Lanka er starfið komið nokkru lengra en þar hafa verið gerðar áætlanir um byggingu umferðarmannvirkja og enduruppbyggingu 62 þorpa og verslunarsvæða.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið „Verulega áhugaverður fávitaskapur“ Innlent Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Innlent Sigldu af stað með mótmælandann um borð Innlent Slagsmál brutust út eftir árekstur Innlent „Ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum“ Innlent „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Innlent Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Erlent Systir Ming Ting: Catherine „ekki sjálfstæð“ Innlent Hyggjast sekta leigusala sem skrá ekki samninga Innlent Þessi fjórtán voru sæmd fálkaorðunni Innlent Fleiri fréttir Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Bretar banna samfélagsmiðlanotkun upp að 16 ára aldri Réðust á dómkirkjuna í Kænugarði Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Staðfesta að samkomulag hafi náðst: Íran fagnar og segir Trump hafa gefist upp Lét Netanjahú heyra það í símtali þeirra: „Ég varð svo brjálaður“ Tólf fórust þegar flugvél hrapaði í Missouri Friðarviðræður sagðar í uppnámi Sjá meira