Verður til í heitum sjó 29. ágúst 2005 00:01
Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfréttamaður segir Katrínu fá orkuna sem hún losi úr sjónum Hann segir að til þess að fellibylur myndist þurfi hitastig sjávar að verða meira en 28 gráður. Þegar Katrín hafi myndast hafi sjórinn verið 32-33 gráður þannig að allar forsendur til myndunar á mjög öflugum fellibyl hafi verið fyrir hendi. Sigurður segir sjóinn óvenjulega heitan því að verðufar á jörðinni fari hlýnandi og þá hafi fellibyljatímabilið lengst, en ekki sjái fyrir endann á því. Sá uppgufunarvarmi sem verði í fellibylnum sé orkan sem verði til, loft stígi upp og þéttist og myndi mikla úrkomu sem sjáist á fréttamyndum og þá losni orka sem valdi hamförunum. Sigurður segir að þegar fellibylur sé að stærð fimm þá sé vindhraðinn meiri en 250 kílómetrar á klukkustund. Það sé um 70 metrar á sekúndu og ef einhver sé staddur nærri hamförunum og finni eitthvað til að grípa í þá standi líkami viðkomandi eins og flagg í flaggstöng. Vindhraðinn sé svo mikill að fólk ráði engan veginn við þær aðstæður sem skapist og ef rýmingaráætlanir hafi ekki gengið sé fólk í New Orleans og nágrenni í mikilli lífshættu. Þá bæti það ekki úr skák að New Orleans sé undir sjávarborði og þegar loftþrýstingur falli, eins og þarna hafi gerst, hækki sjávarborð og fjandinn verði laus. Aðspurður hvort von sé á frekari hamförum af þessu tagi vegna gróðurhúsaáhrifa segir Sigurður það alveg ljóst að svo verði og þær sjáist víðar. Þetta sé hins vegar mikið skólabókardæmi. Sjórinn sé svo hlýr vegna þess að liðið sé á sumarið og hann geti aðeins orðið svona hlýr við suðurströnd Bandaríkjanna og sums staðar á Kyrrahafi. Þessi svæði séu hættulegust. Fellibyljir geti hins vegar ekki myndast við Íslandsstrendur því sjórinn sé ekki nógu hlýr en fellibyljir geti borist hingað sem úrsérgengnar lægðir og venjulegt hvassviðri. Sigurður segir miklar lægðir eins og þessa ganga mjög hratt niður þegar þær komi á land vegna þess að þær gangi fyrir hlýjum sjó. Á næstu tólf tímunum eigi vindhraðinn í Katrínu eftir að detta niður í 38 metra á sekúndu sem sé eins og íslenskt fárviðri.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Fleiri fréttir „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Sjá meira