Jafnrétti ríkir hvergi 29. ágúst 2005 00:01 "
Launajafnrétti og jöfn tækifæri á vinnumarkaði er enn fjarlægur draumur fyrir konur um allan heim," sagði Cherie Booth lögmaður sem hélt erindi á ráðstefnu kvenkyns menningarmálaráðherra víðs vegar úr heiminum sem haldin var í tilefni af 75 ára afmæli Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands. Cherie Booth benti á að konur í Bretlandi fái að meðaltali enn þá aðeins 81 prósent af launum karla og að laun kvenna á Íslandi séu 14 prósentum lægri en karla. "Milljónir kvenna þjást vegna ofbeldis og misnotkunar. Í Bretlandi er talið að fjórða hver kona sé fórnarlamb ofbeldis. Á Íslandi sækja hundrað konur árlega um að dvelja tímabundið í Kvennaathvarfinu," sagði Booth. "Neyðarmóttaka vegna nauðgana tók á móti 496 einstaklingum árið 2003 [...] sem var aukning um 13 prósent á milli ára annað árið í röð." "Af þessum tölulegu upplýsingum, sem eru aðeins örfáar af óendanlega löngum lista, er ljóst að enn er langt í land í heiminum svo jafnrétti ríki milli kynjanna. Bilið milli kynjanna er misstórt eftir löndum, en ljóst er að mynstrið er greinilegt og alls staðar hallar á konur og konur um heim allan vita það," sagði Booth. "Baráttan fyrir réttindum kvenna er jafnframt baráttan fyrir mannréttindum," sagði Booth. Hún benti á að á mannréttindaráðstefnunni í Vín, sem haldin var árið 1993 og 171 þjóð tók þátt í, var samþykkt að mannréttindi væru fyrir alla og að þjóðir heimsins bæru skyldu til að sjá til þess að þau verði tryggð. "Samt sem áður er enn fjöldi kvenna í heiminum sem neitað er um grundvallarmannréttindi sín og meinað að kjósa eða taka þátt í opinberu lífi," sagði hún. Booth fjallaði um niðurstöður könnunar sem Alþjóðaefnahagsráðið, World Economic Forum, gerði á stöðu kvenna í 58 löndum í heiminum. Samkvæmt henni er ekki til land í heiminum þar sem fullkomið jafnrétti ríkir milli kynjanna. Svíþjóð var landið þar sem bilið milli kynjanna var minnst, en Ísland var í þriðja sæti.
Fréttir Innlent Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Sjá meira