Bíða eftir búnaði vegna boltans 10. ágúst 2005 00:01
Ný sjónvarpsstöð, Enski boltinn, fer í loftið nú á föstudaginn og enn bíður fjöldi manns eftir að fá þar til gerðan búnað afgreiddan hjá Símanum til að geta séð stöðina þrátt fyrir að hafa pantað áskrift fyrir talsverðum tíma. Síminn vonast til að allir sem pantað hafi þjónustuna verði komnir með aðgang að stöðinni fyrir helgi. Talsvert hefur borið á því að fólk hafi þurft að bíða í lengri tíma eftir að starfsmenn Símans geti mætt og sett upp nauðsynlegan búnað á heimum fólks. Sumir sem pantað hafa Enska boltann segjast hafa þurft að bíða í allt að því mánuð eftir afgreiðslu og sem dæmi ritar kvikmyndagerðarmaðinn Björn Brynjólfur Björnsson gerin í Morgunblaðið í dag þar sem hann segir bíðtíman eftir afgreiðslu á sjónvarpsstöðinni vera 4-6 vikur. Eva Magnúsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans, segir mikinn fjölda manns hafa sóst eftir því að fá tengingu við hina nýju sjónvarpsstöð á síðustu dögum og vikum og að eftirspurnin hafi farið fram úr björtustu vonum. Eva segir aftur á móti að Síminn sé nú að bregðast við þessari auknu eftirspurn og hefur starfsmönnum við uppsetningu á nauðsynlegum búnaði til að sjá stöðina verið fjölgað talsvert og vonast hún til að allir sem pantað hafi áskrift að stöðinni verði komnir með aðgang fyrir helgina. Eva bendir einnig á að fjöldi fólks á biðlista sé einungis að sækjast eftir ADSL-tengingum hjá Símanum án áskriftar að Enska boltanum og því sé biðtíminn ekki eins langur og margir hafa haldið fram. Síminn tekur jafnframt fram að áskrifendur að Enska boltanum hafi forgang á við aðra svo að sem flestir verði tengdir þegar flautað verður til leiks í þessari vinsælustu knattspyrnudeild heims nú á laugardaginn.
Fréttir Innlent Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Fleiri fréttir „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Sjá meira