Neyðarlínan synjaði konunni um aðstoð 1. nóvember 2005 13:18
Það gengur kraftaverki næst að kona skyldi sleppa lifandi þegar tengivagn flatti út bíl hennar í Leirársveit í gærkvöldi. Að sögn móður hennar hafði Neyðarlínan synjað henni um aðstoð áður en óhappið varð. Konan, sem var ein á ferð, var stödd í Skorholtsbrekku í Leirársveit um sjöleytið í gærkvöldi þegar hún missti stjórn á bíl sínum með þeim afleiðingum að hún lenti utan vegar. Hún hringdi þá í Neyðarlínuna til að óska eftir aðstoð. Þar var hún spurð hvort hún væri slösuð sem hún svaraði neitandi. Þá segist hún hafa fengið þau svör að best væri að hún hringdi sjálf á dráttarbíl til að komast aftur upp á veginn. Þegar hún kvaðst eiga erfitt með að sætta sig við það svar gaf Neyðarlínan henni samband við lögregluna í Borgarnesi. Í sama mund kom maður akandi sem bauðst til að reyna að draga hana upp á veg þannig að hún sleit símtalinu. Sú tilraun tókst hins vegar ekki og ákvað konan þá að biðja unnusta sinn að ná í sig, sem hún og gerði. En meðan hún beið hans kom flutningabifreið akandi fram hjá og tengivagn, sem flutningabíllinn dró, valt undan vindhviðu og varð bíll konunnar undir tengivagninum. Bifreið konunnar lagðist bókstaflega saman og þurftu björgunarmenn að beita klippum til að ná henni úr flakinu. Hún var flutt á sjúkrahúsið á Akranesi þar sem hún gekkst undir rannsókn en reyndist hafa sloppið ótrúlega vel miðað við aðstæður, og þykir það reyndar ganga kraftaverki næst, en hún kvartaði aðeins undan lítils háttar höfuðverk. Konan fékk hins vegar mikið taugaáfall og mun fá áfallahjálp í dag. Þegar haft var samband við Þórhall Ólafsson, framkvæmdastjóra Neyðarlínunnar, í morgun til að spyrjast fyrir um símtal konunnar, m.a. hvort henni hafi verið bent á að hringja sjálf á dráttarbíl, sagðist hann ekki geta gefið upplýsingar um einstök mál en telur að málið hafi verið unnið með eðlilegum hætti.
Fréttir Innlent Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Fleiri fréttir Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Sjá meira