Brúðarkjólar keyptir á Netinu 30. júlí 2005 00:01
Tilvonandi brúðir eru farnar að nýta sér Netið í auknum mæli til að kaupa ódýrari brúðarkjóla. Algengt leiguverð er 25 til 40 þúsund krónur en hægt er að kaupa kjóla á Netinu fyrir 10 til 15 þúsund krónur hingað komna. Eigendur kjólaleiga óttast þó ekki samkeppnina. Eins og fram hefur komið í ýmsum úttektum á brúðkaupum og kostnaðinum við þau er það langt í frá ókeypis að láta pússa sig saman - ekki síst að líta sæmilega út á meðan. Tilvonandi brúðir leita nú ýmissa leiða til að lækka kostnaðinn, og ein þeirra er að kaupa brúðarkjóla í gegnum Netið. Á uppboðssíðunni E-bay eru til dæmis hundruð brúðarkjóla til sölu, af öllum stærðum og gerðum, notaðir og ónotaðir. Verðið er allt frá nokkur þúsund krónum upp í um hundrað þúsund. Það er því hæglega mögulegt að fá kjól fyrir 10 til 15 þúsund krónur, með sendingarkostnaði. Hérlendis er algengt að borga 25 til 40 þúsund krónur fyrir leigu á kjól og stundum fylgihlutum. Svo er hægt að kaupa kjóla fyrir allt frá sextíu þúsund krónum og upp í hálfa milljón. Þrátt fyrir þetta virðast eigendur kjólaleiga ekki hafa miklar áhyggjur af samkeppninni við Netið. Sigurdís Ólafsdóttir, kjólameistari í Tveimur hjörtum, segist hafa sinnt þessum stúlkum, t.d. með því að leigja þeim undirpils og gera einhverjar breytingar ef kjólarnir passi ekki alveg. Svo þurfi einnig að hreinsa kjólana. Samkeppnin við Netið sé því ekki hættuleg. En ef hver kjóll borgar sig upp með því að leigja hann tvisvar þrisvar út, er þetta þá ekki gullnáma? Aðspurð hversu oft sé hægt að leigja hvern kjól út segist Sigurdís þurfa að meta það í hverju tilviki fyrir sig. Það fari t.d. eftir því í hvaða ástandi þeir komi aftur og úr hvaða efni þeir séu en ekki sé óalgengt að þeir fari fjórum sinnum í leigu.
Fréttir Innlent Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira