Innlent

Hefði verið kyrrsett annars staðar

Hin sérstaka rannsóknarnefnd sem skoðað hefur alla þætti flugslyssins í Skerjafirði tekur undir margar athugasemdir aðstandenda þeirra sem fórust og gerir fjölmargar tillögur um bætta starfshætti Flugmálastjórnar og Rannsóknarnefndar flugslysa. Danski sérfræðingurinn í nefndinni telur að samkvæmt íslenskum lögum hefði ekki verið hægt að kyrrsetja vélina, en það hefði verið gert í mörgum öðrum löndum. Aðstandendur gerðu einkum sex athugasemdir samkvæmt skýrslunni. Þær lutu að skráningu flugvélarinnar á Íslandi, útgáfu lofthæfisskírteinis, afhendingu hreyfilsins snemma á rannsóknarferlinum, flugumferðarþjónustu þegar slysið varð, fyrri atvikum sem flugmaðurinn var viðriðinn og flugrekstrar- og viðhaldsþjónustu flugrekandans. Rannsóknarnefndin tekur undir fjögur atriði af þessum sex og segir í niðurstöðum sínum að flugmálastjórn hefði hvorki átt að skrá flugvélina né gefa út lofthæfisskírteini henni til handa vegna óljósrar sögu og ófullkominna gagna sem fylgdu henni. Danski sérfræðingurinn Sören Flensted, sem átti sæti í rannsóknarnefndinni, sagði í samtali við fréttastofu í dag að eftir því sem honum skildist þá hefði skortur á gögnum ekki dugað til að kyrrsetja vélina samkvæmt íslenskum lögum, en að í mörgum öðrum löndum hefðu þessi ófullkomnu gögn leitt til þess að vélin hefði verið kyrrsett. Flensted vildi þó taka fram að hann hefði ekki lesið skýrsluna í endanlegri mynd. Nefndin tekur einnig undir að flugumferðarþjónustu hafi verið ábótavant og að eftirlit Flugmálastjórnar með flugrekanda hafi ekki verið fullnægjandi. Sala hreyfilsins úr landi og fyrri flugatvik sem flugmaðurinn hafði lent í eru ekki talin skipta máli. Nefndin telur einnig að ýmislegt sé rangt í lokaskýrslu bresku flugslysasérfræðinganna tveggja sem aðstandendur fengu til að vinna óháða rannsókn fyrir sig. En orsök slyssins er skýr: eldsneytisskortur og þreyta og þjálfunarleysi flugmanns. Tillögur nefndarinnar til úrbóta eru fjölmargar og snúa einkum að starfsemi Flugmálastjórnar, en einnig að rannsóknarnefnd flugslysa og samgönguráðherra. Hvorki náðist í Sigurð Líndal, formann nefndarinnar, né Sturlu Böðvarsson samgönguráðherra í dag en Sigurður hafði áður neitað að tjá sig um skýrsluna við Stöð 2.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×